Kynning á frambjóðendum
í dag klukkan 14:00 verður kosið um það hver verður formaður LH næstu tvö árin en þeir Guðni Halldórsson og Ólafur Þórisson eru tveir í framboði.
Klukkan 14:40 verður svo kosið í stjórn og varastjórn.
Hér fyrir neðan er kynning á öllum þeim sem bjóða sig fram en þetta kemur fram á heimasíðu LH.
Framboð til formanns LH
Guðni Halldórsson. – Herði
Ég er 47 ára gamall Mýramaður sem er nú búsettur á Skrauthólum á Kjalarnesi. Á konu, 4 börn, tvo hunda, ketti, hænur og 20 hross.
Ég hef stundar hestamennsku frá barns aldri og komið að flestum þáttum hestamennskunnar, í mis miklu mæli þó. Ég er fyrst og fremst bara áhuga útreiðarmaður og áhuga ræktandi sem reyni að gera sem mest sjálfur, temja, þjálfa, járna og annað sem til fellur og fer stundum inn á hrigvöll ef þannig liggur á mér, með misjöfnum árangri.
Þau mál sem ég brenn fyrir og hyggst koma til leiðar sem formarður LH:
- Nýliðun. Bæði barna og ungmenna, og ekki síður fullorðinna.
- Markaðs-, ímyndar og kynningarmál hestamennskunnar
- Efla samstöðu innan raða okkar hestamanna
- Reiðvega og öryggismál
- Stefnumótun LH í samvinnu við aðildarfélögin
Ég hef kannski ekki talist félagsmálatröll hingað til en ég er stjórnarmaður í Karlakóri Kjalnesinga, stofnandi og formaður Kirkjukórs Reynivallaprestakalls og sit í landsliðsnefnd LH en þessi þrjú verkefni hafa verið ansi fyrirferðamikil undanfarin ár og ég er afa stoltur af þeim öllum og því starfi sem ég hef komið til leiðar. Áður var ég í dómaranefnd HÍDÍ, stjórn hestamannafélagsins Faxa í gamla daga, Háskólaráði Háskólans á Bifröst og ýmsu öðru sem dottið hefur inn á lífs leiðinni, en sjaldan sóst eftir frama í félagsmálum, fyrr en kannski nú.
Í mínum huga er kyrrstaða það sama og stöðnun. Ég hef þor, dugnað og getu til að koma málum í áfram og mun ekki gefast upp fyrr en við verðum búin að koma LH á þann stað sem samtökin eiga að vera.
Ég bið þingfulltrúa að hugsa vel hvort ekki sé kominn tími til að hleypa að nýju fólki sem hefur framtíðarsýn og metnað fyrir því að gera það sem þarf til að koma LH á þann stað sem samtökin eiga að vera á.
Framboð til formanns LH
Ólafur Þórisson – Geysi
Fæddur 3.desember 1977, búsettur í Miðkoti Rangárþingi Eystra ásamt eiginkonu að nafni Sarah M. Nielsen og 3 börnum. Starfa sem tamningarmaður og bóndi.
Hef verið mikið í félgsmálum hestamanna fyrir hestamannafélagið Geysir síðustu 14 ár, bæði sem gjaldkeri og síðan formaður félagsins síðastliðin 10 ár. Gjaldkeri Landssambands hestmannafélaga og gjaldkeri LM ehf undanfarin 6 ár. Einnig starfað í félagsmálum annara íþróttagreina.
Sú reynsla sem ég bý yfir tengdri hestamennskunni gefur mér þekkinug á nánast öllum sviðum hestamennskunnar. Ég ferðast á hestum, tem og þjálfa hesta, keppi, rækta og sel hesta, starfa við mótahald, æskulýðsstörf í hestamannafélagi og margt fleira. Þessi þekking og reynsla gefur mér góða yfirsýn yfir það starf sem formaður LH þarf að hafa kunnáttu á auk þess að þekkja vel störf og hlutverk Landssambands hestamannafélaga.
Ég vil leggja áherslu á að efla menntun í hestamennsku með því að hestaíþróttin geti orðið valfag/námsgrein á fleiri stöðum en hún er í dag.
Reiðvegamálum þarf að gefa góðan gaum og halda áfram að sækja fram til að ekki verði skerðing á ferðafrelsi okkar hestamanna.
Æskulýðsmál og nýliðunarmál eru nátengd og vinna þétt saman, þetta er eilífðarverkefni sem þarf sífellt endurskoðun. Ég vil vera opinn fyrir tækifærum til að sækja fram fyrir okkur hestamenn.
Það mikilvægasta er þó alltaf að standa vörð um einingu innan geinarinnar og það samstarf sem verið hefur innanlands og milli landa.
Ég býð fram mína reynslu, metnað og dugnað.
Ólafur Þórisson Miðkoti
Framboð til aðalstjórnar LH
Ágúst Hafsteinsson – Sleipni
Ágúst Hafsteinsson er fæddur í Reykjavík árið 1956. Hann hóf afskipti af félagsmálum hestamanna árið 1992 og sat í stjórn Hestamannafélagsins Andvara frá 1995-99.
Árið 1995 tók hann gæðingadómarapróf og hefur hann sinnt stjórnarstörfum gæðingadómarafélagsins meðal annars sem formaður félagsins og í dag er hann gjaldkeri þess. Hann hefur dæmt gæðingakeppni víða á Íslandi og erlendis, þar á meðal Landsmót hestamannafélaga frá 2004 til 2012 og gegndi hann hlutverki yfirdómara á mörgum þeirra. Ágúst hefur setið Landsþing hestamannafélaga frá árinu 1997 sem þingfulltrúi
Hestamannafélagsins Andvara og síðar Sleipnis á Selfossi. Þá hefur hann setið í fjölmörgum ráðum og nefndum, meðal annars keppnisnefnd Landssambandsins frá árinu 2000 til 2018. Árið 2007 flutti Ágúst ásamt fjölskyldu sinni í Sveitarfélagið Árborg og fljótlega upp úr því fór hann að starfa að félagsmálum Sleipnismanna og sat í Æskulýðsnefnd Sleipnis. Var hann meðal annars formaður nefndarinnar þegar Sleipnir fékk Æskulýðsbikarinn á Landsþingi í Reykjavík árið 2012. Árið 1995 setti Ágúst ásamt góðum félögum á laggirnar hið fræga Metamót sem haldið var á keppnissvæði Andvara á Kjóavöllum og starfaði við mótið í 10 ár , oftast með sömu félögunum. Mótið hefur alltaf notið mikilla vinsælda .
Ágúst hefur einnig sinnt starfi mótsstjóra Íslandsmóta fyrst hjá Hestamannafélaginu Andvara á Kjóavöllum árið 2005 og seinna hjá Hestamannfélaginu Sleipni á Brávöllum árið 2011. Enn þann dag í dag er hann í gæðingakeppnismótanefnd Sleipnis ásamt að sitja í stjórn LH síðustu tvö árin.
Framboð til aðalstjórnar LH
Eggert Hjartarson – Sörla
Ég heiti Jean Eggert Hjartarson Claessen og ég er í hestamannafélögunum Sörla og Adam. Ég starfaði í stjórn Sörla í sex ár auk þess að hafa unnið í ýmsum nefndum hjá því félagi s.s. reiðveganefnd, fræðslunefnd.
Ég er í stjórn LH og hef verið tengiliður stjórnar við starfsemi og uppbyggingu á Skógarhólum s.l. tvö ár. Það hefur verið unnið mikið sjálfboðastarf á Skógarhólum og miklar endurbætur gerðar síðan þessi uppbygging hófst. T.d. voru endurbætur á girðingum ásamt því að eldhús og þak voru endurnýjuð auk fleiri atriða. Einnig stofnaði ég félagsskap sem kallast vinir
Skógarhóla og er hópur fólks sem vill hjálpa til að byggja upp aðstöðuna á Skógarhólum og gera hana betri. Ég hef mikinn áhuga á að halda áfram uppbyggingu Skógarhóla í samvinnu við vini Skógarhóla og stjórn LH.
Einnig hef ég tekið þátt í margvíslegum verkefnum í tengslum við skrifstofu LH og reynt að aðstoða þar eftir fremsta megni
Ég hef mikinn áhuga á nýliðun í hestamennsku og uppbyggingu félagshesthúsa og vil gjarna leggja mitt af mörkum í þeim efnum. Ég óska eftir því að fá stuðning ykkar til þess að fá að halda áfram að vera í stjórn LH og sinna þessum verkefnum ásamt öðru.
Kær kveðja Eggert.
Framboð til aðalstjórnar LH
Gréta V. Guðmundsdóttir – Spretti
Gréta er uppalin í Kópavogi og hefur haldið hesta í Gusti frá barnsaldri. Síðar gerðist hún félagi í Spretti og situr þar í stjórn. Hún stundar almenna hestamennsku, ferðast um landið á hestbaki á hverju sumri og keppir aðeins í áhugamannakeppnum.
Hún er starfandi hönnuður og hefur unnið að að hönnun og markaðssetningu fyrirtækja í fjölda ára, þar á meðal fyrir Félag hrossabænda, nokkur Landsmót og fjölda hestatengdra verkefna.
Hún útskrifaðist 2014 með meistaragráðu í hönnun frá Listaháskóla Íslands þar sem hún samtvinnaði tvær ástríður sínar, hönnun og hesta, í eitt útskriftarverkefni sem hún hélt nokkra fyrirlestra um, m.a. fyrir Félag hrossabænda og Íslandsstofu tengt Horses of Iceland verkefninu. Í kjölfar námsins í LHÍ vann hún við nýsköpun nokkurra verkefna í Setri skapandi greina við Hlemm.
Gréta hefur verið varaformaður FÍT, Félags íslenskra teiknara og sat í stjórn þar í mörg ár, er varamaður í stjórn Hönnunarsjóðs Íslands og verið í nefndarkona í Spretti og situr nú í stjórn félagsins.
Gréta keypti nýlega jörðina Áskot í Ásahreppi ásamt manni sínum og undirbýr rekstur í hestatengdri þjónustu.
Með því að gefa kost á sér til stjórnarsetu í LH vill Gréta vinna að því að styrkja grastrót hestamennskunnar betur, finna leiðir til að opna hestaheiminn fyrir almenningi, þá sérstaklega með nýliðun í huga, standa vörð um reiðleiðir, verja svæði hestamanna á höfðuborgarsvæðinu og auka almennan skilning og áhuga á hestamennsku í sinni víðustu mynd.
Framboð til aðalstjórnar LH
Hákon Hákonarson – Herði
Nú í haust læt ég af formennsku í Hestamannafélaginu Herði þar sem ég hef verið formaður undanfarin 4 ár. Á þeim tíma hefur verið m.a. lögð áhersla á verklegar framkvæmdir á svæðinu, uppbyggingu aðal reiðleiða félagsmanna, ásamt því að hlúa að æskulýðsstarfinu og reiðskóla fatlaðra. Mín helstu áherslu- og áhugamál í hestamennsku eru málefni hins almenna hestamanns. “Að njóta samvistunar við þessi einstöku dýr úti í guðs grænni náttúrunni” Stöðug samkeppni er um reiðleiðir og þurfum við hestamenn að halda vöku okkar og “berjast” fyrir tilveru okkar og aðbúnaði. Framtíðin er í börnunum og til þess að vel eigi að fara þarf að standa betur að nýliðun. Þar er hestamennskan í samkeppni við aðrar íþróttagreinar, íþóttagreinar sem búa við allt aðra aðstöðu en hestamannafélögin geta boðið. Þessu þarf að breyta og þar á LH að vera í fararbroddi.
Framboð til aðalstjórnar LH
Ingimar Baldvinsson – Sleipni
Ég hef verið í hestamensku síðan í barnæsku og fékk mjög snemma áhuga á ræktun.
Mín hestamenska snýst fyrst og fremst um ræktun og hestaferðir.
Hef lítillega komið að markaðsmálum hjá FHB.
Var aðstoðarmaður Magnúsar Skúla í Sænska landsliðinnu þrenna heimsleika, skemmtileg reynsla.
Vil leggja áherslu á að efla grasrótina og markaðsstarf Íslenska hestsins.
Kveðja Ingimar Baldvinsson Framkvæmdastjóri IB ehf.
Framboð til aðalstjórnar LH
Ómar Ingi Ómarsson
Ég bíð krafta mína fram til sjórnar LH. Hestamennska er mín atvinna, áhugamál og ástríða einnig bý ég og starfa í mikilli fjarlægð frá því sem margir kalla “Mekka hestamennskunnar” semsagt á Horni við Hornafjörð. Ég er bæði menntaður sem reiðkennari FT frá Háskólanum á Hólum og dómari í hestaíþróttum. Einnig hef ég starfað við hesta utan landsteinanna til nokkura ára og þekki til hvernig hlutirnir ganga fyrir sig nokkuð vel bæði í Þýskalandi og Svíþjóð. Mikilvægt er að auðvelda félögum út á landi að halda sín félagsmót því kostnaður við flutning dómara er mikill fyrir félög sem eru lengst frá. Ekki vil ég að löglegt mótahald leggist af á landsbygðinni. Ég tel mig réttsýnan, heiðarlegan ég er ekki brothættur en hægt er að beygja mig með góðum rökum með að skipta um skoðunn þegar ég sé eitthvað sem er visku lengra en mín hugmynd eða skoðun. Síðustu tvö ár sem varastjórnarmaður hefur verið góður skóli til að komast inní og skilja betur virkni LH og þessvegna bíð ég krafta mína áfram til að vinna með næstu stjórn LH.
Framboð til aðalstjórnar LH
Siguroddur Pétursson
Kæru félagar í Landssambandi hestamanna,
Siguroddur Pétursson heiti ég og býð mig fram til setu í aðalstjórn LH en ég hef setið í varastjórn LH síðast liðin tvö ár. Á undanförnum tveimur árum hef ég beitt mér að keppnismálum og málefnum fyrir hinn almenna hestamann. Stjórnarsetu fylgir mikil ábyrgð og er árangursrík teymisvinna á stjórnarfundum lykillinn að velgengni. Ég tel að reynsla mín í félagsstörfum í þágu hestamennskunnar og sem atvinnumaður í greininni myndi nýtast vel. Ég vil leggja mitt af mörkum til að vinna að langtímahagsmunum hestamennskunnar og efla gott orðspor til framtíðar.
Virðingarfyllst,
Siguroddur, Hrísdal Snæfellsnesi.
Framboð til aðalstjórnar LH
Sóley Margeirsdóttir – Mána / Geysi
Sóley Margeirsdóttir, íþróttafræðingur og vinn sem grunnskólakennari í Laugalandsskóla í Holtum. Ég er uppalin í hestamannafélaginu Mána á Suðurnesjum. Hef verið í hestamennsku frá því ég man eftir mér. Ég hef stundað hestamennsku með fjölskyldu minni og höfum við öll haft gaman af. Ég var mikið að keppa í yngri flokkunum en þegar ungmenna flokkurinn var á enda sá ég mig ekki vera að keppa við þá allra bestu, stóru nöfnin í sportinu. Ég hef aðeins verið að keppa síðustu ár en ekki mikið. Ég hef mjög gaman að því að fara í hestbak. Nú er ég flutt í sveitina og bý á Vöðlum í Landsveit og er því einnig félagsmaður í hestamannafélaginu Geysi.
Ég hef mikinn áhuga á félagsmálum og hef tekið þátt í ýmsum verkefnum hestamennskunnar. Ég hef mikinn áhuga á æskulýðsmálum og ungu kynslóðinni sem er að stíga sín fyrstu skref í hestamennskunni. Hef m.a rekið reiðskóla og verið með þjálfun fatlaðra á hestbaki. Ég hef starfað í æskulýðsnefnd LH síðan 2006, farið á vegum LH á Youth Camp og Youth Cup. Einnig hef ég verið í tölvunefnd LH og nú síðast í landsliðsnefnd LH. Ég fór með landsliðinu til Berlínar og var ungmennunum þar innan handar sem og öllu liðinu. Ég hef lagt mitt af mörkum í sjálfboðavinnu bæði fyrir LH, Geysi, Mána og önnur félög hvað
varðar mótahald og uppbyggingu. Ég hef verið að stýra mótum og verið leiðbeinandi með Sportfeng sem er núna að ryðja sér til rúms á Norðurlöndunum. Ég fór til Svíþjóðar og aðstoðaði þar mótshaldara með notkun Sportfengs og LH kappa smáforritsins.
Ég er sitjandi varaformaður LH og gef kost á mér áfram til áframhaldandi setu í stjórn LH og mun leggja mitt af mörkum til að efla hestamennskuna í landinu.
Framboð til aðalstjórnar LH
Stefán Logi Haraldsson – Skagfirðingi / Borgfirðingi
Stefán Logi Haraldsson, 58 ára gamall, búsettur á Sauðárkróki.
Hef starfað sem framkvæmdastjóri Steinull hf., Sauðárkróki frá 01. apríl 2018 og þar áður var ég framkvæmdastjóri Límtré Vírnet ehf. í Borgarnesi.
Var kosinn í stjórn LH á landsþingi þess á Akureyri, í október 2018 og hef ákveðið að gefa áfram kost á mér til stjórnarsetu í LH. Hef einnig átt sæti í landsliðsnefnd LH síðustu tvö ár. Félagsstörf mín fyrir hestamenn hafa falist í setu í stjórn LH og landsliðsnefnd, síðustu tvö ár, en þar á undan sinnti ég störfum fyrir hestamannafélagið Skugga, í Borgarnesi og var formaður þess félags í um 10 ára tímabil – eða þar til það félag sameinaðist hestamannafélaginu Faxa í Borgarfirði og úr varð hestamannafélagið Borgfirðingur.
Ég er nú félagsmaður í bæði Skagfirðingi og Borgfirðingi.
Á síðustu tveimur árum hef ég starfað með frábæru fólki í stjórn, nefndum og starfsliði LH og hefur, að mínu mati, mörgu verið áorkað og mikið og gott starf verið lagt að mörkum fyrir hestasamfélagið. Alltaf má örugglega gera betur og meira og er það hvati minn til að gefa kost á mér til áframhaldandi starfa fyrir landssambandið. Margir af sitjandi stjórn gefa kost á
sér áfram, sem er vel og kemur reynsla þeirra til með að nýtast vel í áframhaldandi starfi. Ákveðnir stjórnarmenn hafa þó ákveðið að kalla gott og er eftirsjá í starfskröftum þeirra og ber að þakka þeim af alhug fyrir vel unnin störf. Það er líka ánægjulegt að fyrir liggi að nokkrir nýir aðilar gefa kost á sér til starfa í stjórn LH og lítur út fyrir að þar séu á ferðinni flottir og öflugir fulltrúar sem geti komið með nýjar víddir og endurnýjaðan kraft inní starfsemina okkar.
Mér er, í hreinskilni sagt, ekkert sárt um sæti mitt í stjórn LH og er mér næst að trúa því að sá glæsilegi hópur sem býður sig fram til stjórnarsetu geti verið vel skipaðir fulltrúar okkar inn í framtíðina, þó mitt nafn væri ekki þar á meðal.
Framboð til varastjórnar LH
Aníta Aradóttir – Fáki
Er fædd og uppalin í Reykjavík.
Útskrifaðist 2013 sem þjálfari og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum.
Hef alla mína ævi unnið við tamningar og þjálfun. Hef unnið hjá mörgum atvinnumönnum bæði hérlendis og erlendis þ.á.m. Bandaríkjunum, Sviss og Þýskalandi.
Hef haft það að markmiði að gera og læra öðruvísi hluti tegnt hestamennsku eins og t.d. lærði ég tamningaraðferðir hjá Monty Roberts og liberty þjálfun hjá Sylvie Willms í Frakklandi. Hef líka ferðast mikið um heiminn og sýnt og kynnt íslenska hestinn á hestasýningum í USA og Þýskalandi.
Keppti mikið á yngri árum en mitt helsta afrek er þegar ég fór til Mongólíu og keppti í hættulegustu kappreið í heimi og kláraði 1000km á 10 dögum. Gaf út bók um það og var valin kona ársins 2014.
Eftir það vann ég sem leiðsögumaður í hestaferðum og fór í skóla og fyrirtæki og hélt fyrirlestra um hvernig á að fara út úr þægindarammanum og takast á við erfið verkefni. Ég hef gaman af að gera nýja hluti og skora á sjálfa mig og vil vera partur af því að efla nýliðun í hestamennsku á Íslandi og gera nýja hluti tengda hestamennskunni.
Ég er 38 ára Þingeyingur, búsettur í Reykjavík þar sem ég er starfandi framkvæmdastjóri hestamannafélagsins Fáks. Í félagsmálum hef ég komið að undirbúningi og vinnu á mótum, fyrst hjá hmf. Þjálfa í Suður-Þingeyjarsýslu og síðar hjá hmf. Grana á Húsavík. Frá 2019 hef ég starfað sem framkvæmdastjóri hmf. Fáks og séð um framkvæmd viðburða, móta og almennan rekstur félagsins.
Ég býð mig fram í varastjórn LH því ég hef mikinn áhuga á þeim málefnum og vinnu sem landssambandið stendur fyrir.
Framboð í varastjórn LH
Einar Gíslason – Fáki
Framboð til varastjórnar LH
Lilja Björk Reynisdóttir – Hring
Ég heiti Lilja Björk Reynisdóttir, ég er uppalinn á hestbaki á Brávöllum í Glæsabæjarhreppi. Ég er í Hestamannafélaginu Hring í Dalvíkurbyggð þar sem ég bý nú. Ég hef verið í stjórn Hrings að stórum hluta síðan 1992 og formaður s.l. 6 ár en lét af því embætti á þessu ári.
Ég hef setið sem varamaður í stjórn LH s.l. 2 ár, við höfum þurft að taka erfiðar ákvarðanir á þessu tímabili en þó er þetta er búið að vera góður og skemmtilegur tími.
Framboð til varastjórnar LH
Einnig bjóða eftirfarandi frambjóðendur kost á sér til vara í varastjórn LH
Eggert Hjartarsson Gréta V. Guðmundsdóttir Ingimar Baldvinsson Ómar Ingi Ómarsson Siguroddur Pétursson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH