Æskulýðsbikar LH til Hornfirðings
Ómar Ingi Ómarsson tekur við æskulýðsbikarnum fyrir hönd Hornfirðings úr höndum Sóleyjar Margeirsdóttur stjórnarmanns í LH
Hestamannafélagið Hornfirðingur fékk í gær æskulýðsbikar LH afhentan fyrir árið 2020. Afhendingin fór fram í tengslum við Landsþing LH.
Hestamannafélagið Hornfirðingur var stofnað 17. maí 1936 og eru alls 164 hestamenn skráðir í félagið.
Eiðfaxi óskar Hestamannafélaginu Hornfirðingi til hamingju með þessa glæsilegu viðurkenningu.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV