Søren Madsen kynbótaknapi ársins í Danmörku
Sören Madsen og Skinfaxi frá Lysholm
Eins og greint var frá hér á vef Eiðfaxa í gær, var hryssan Dalla frá Auðsholtshjáleigu kjörin hryssa ársins í Danmörku árið 2020. En Danir létu ekki þar við sitja heldur völdu þeir einnig stóðhest ársins og kynbótaknapa ársins.
Stóðhestur ársins er Skinfaxi frá Lysholm. Skinfaxi er fæddur árið 2012, undan Kiljan frá Steinnesi og Sælu frá Þóreyjarnúpi og var hann því fluttur frá Íslandi til Danmerkur í móðurkviði. Hann hlaut sinn hæsta dóm á kynbótasýningu í Herning í sumar: sköpulag upp á 8,41, hæfileikar upp á litla 8,94 og aðaleinkunn 8,75. Hlaut Skinfaxi meðal annars 9,5 fyrir skeið og samstarfsvilja og 9,0 fyrir tölt, greitt stökk og fegurð í reið.

Knapi á Skinfaxa var Sören Madsen en hann var einnig valinn kynbótaknapi ársins í Danmörku. Sören sýndi 33 hross á árinu, þar af 30 þeirra í fullnaðardóm. Fyrir utan glæsilega sýningu á Skinfaxa þá sýndi Sören einnig Blysfara frá Þóreyjarnúpi (ae. 8,40), Aldísi frá Tornbjerg (ae. 8,39), Óskastein frá Hårkildegård (ae. 8.30) og Tengil frá Hofi (ae. 8.24). Til hamingju Sören!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH