Hestatengd ferðaþjónusta í blóma
Ferðaþjónustan er stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar og hestatengd ferðaþjónusta er ört stækkandi atvinnugrein. Ár eftir ár hafa borist fréttir af metaðsókn ferðamanna í hestatengda afþreyingu og árið 2014 er engin undantekning. Algengt er að ferðamenn fari á hestbak hjá hestaleigum eða í hestaferðir. Hestasýningar eru skemmtileg viðbót við þennan frjóa markað.
Eiðfaxi leit í heimsókn til nokkurra hestatengdra ferðaþjónustufyrirtækja sem hafa það að markmiði að bera hróður íslenska hestsins til hins almenna ferðamanns.
Greinina má nálgast í 9. tölublaði, sem kemur út í dag. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].