Verðlaunatilnefningar hestamannafélagsins Geysis 2020

  • 24. desember 2020
  • Fréttir

Þar sem ekki er hægt að halda uppskeruhátíð þetta árið ákvað stjórn Geysis samt að tilnefna og verðlauna allt það hæfileikaríka keppnisfólk sem er í félaginu.

Hér koma þær tilnefningar fyrir árið 2020.

Ávalt hafa verið tilnefndir þrír í öllum þeim flokkum sem hægt er og gerum við eins nú. Sigurvegararnir munu svo verða tilkynntir síðar.

Einnig fylgir með hæstu kynbótahross félgsins og munu þau öll fá viðurkenningarplatta.

Svo má ekki gleyma öllum þeim sjálfboðaliðum félagsins sem hafa starfað fyrir hestamannafélagið Geysir á árinu 2020, kringum alla viðburði hvaða nafni sem þeir nefnast, mótum, nefndum og fleira. Þeim öllum þökkum við kærlega fyrir alla hjálpina á árinu, án ykkar er þetta ekki hægt.

Hestamannafélagið Geysir óskar öllum gleðilegra jóla og góðs nýárs.

 

Gæðingaknapi Geysis

Eygló Arna Guðnadóttir

Keppti á mörgum gæðingamótum í sumar með góðum árangri á þremur hrossum Nýjum Degi, Heppni og Dögun, öll frá Þúfu í Landeyjum. Komst í úrslit á þeim öllum á þeim mótum sem hún keppti á.

Er með tvö hross á WR lista í gæðingakeppni, þau Heppni í 5 sæti með 8,47 og Nýjan Dag í 6 sæti með 8,42.

Sigurður Sigurðarson

Hafnaði í öðru sæti á Gæðingamóti Geysis í B-flokki á Narfa frá Áskoti með einkunnina 8,85.

Sigraði Meistaramót Íslands í B-flokki á Narfa frá Áskoti með einkunnina 8,83

Narfi frá Áskoti og Sigurður eru þriðju á WR lista í gæðingakeppni með einkunnina 8,53.

Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson

Sigraði A-flokk Gæðingaveislu Sörla á Bjarma frá Litlu-Tungu 2 með einkunnina 8,84.

Sigraði A-flokk á Opna Gæðingamótinu á Flúðum einnig á Bjarma frá Litlu-Tungu 2 með einkunnina 8,79.

Bjarmi frá Litlu-Tungu 2 og Sæmundur eru fjórðu á WR lista í gæðingakeppni með einkunnina 8,52

Lind frá Úlfsstöðum og Sæmundur eru áttundu á WR lista í gæðingakeppni með einkunnina 8,27

Íþróttaknapi Geysis

Davíð Jónsson

Sigraði Gæðingaskeið meistaraflokk á Íþróttamóti Geysis í vor með einkunnina 8,92 sem er Íslandsmet í gæðingaskeiði og hæðsta einkunn í íþróttakeppni sem gefin var á þessu keppnistímabili 2020.

Sigraði með 7,83 í einkunn í gæðingaskeiði Meistaradeildarinnar.

Er efstur á stöðulista í gæðingaskeiði.

Stóð líka ofarlega í öðrum greinum sem hann keppti í á árinu í íþróttakeppni.

Elvar Þormarsson

Tók þátt í mörgum mótum í sumar á þó nokkrum hrossum. Helst er þó að nefna Kötlu frá Fornusöndum. Urðu þau í öðru sæti í tölti T1 bæði á Íþróttamóti Geysis og Íþróttamóti Sleipnis.

Náði einnig góðum árangri á Skímu frá Hvolssvelli, Klassík frá Skíðbakka 1, Heilun frá Holtabrún og Tígli frá Bjarnastöðum.

Hjörvar Ágústsson

Náði góðum árangri í þeim mótum sem hann tók þátt í. Helstu keppnishestar Hjörvars í sumar voru Ás og Bylur frá Kirkjubæ, Hrafnfinnur frá Sörlatungu, Fróði frá Brautarholti, Gletta frá Litla-Dunhaga II, Djarfur frá Litla-Hofi og Ísöld frá Kirkjubæ.

Ungmennaskál Geysis

Bergrún Halldórsdóttir

Keppti mikið í gæðingakeppni og einnig í íþróttakeppni. Náði í A-úrslit á Gæðingamóti Geysis og endaði í 6 sæti. Hennar keppnishestur var Andvari frá Lágafelli.

Emma Bertelsen

Náði frábærum árangri í sumar í gæðingakeppni á Ask frá Miðkoti. Sigraði Gæðingamót Geysis með einkunnina 8,39. Komst einnig í úrslit á Meistaramóti Íslands í gæðingakeppni á Víðir frá Miðkoti. Tók þátt í Meistaradeild Ungmenna með góðum árangri og náði 5 sæti í Gæðingafimi á Ask frá Miðkoti.

Erika Sundgaard

Tók þátt í Meistaradeild Æskunnar með fínum árangri. Keppti þónokkuð í íþróttakeppni og gæðingakeppni á árinu. Varð í öðru sæti á Viktoríu frá Miðkoti með einkunnina 8,31 á Gæðingamóti Geysis. Keppti einnig á Meistaramóti Íslands í gæðingakeppni með góðum árangri

Skeiðskálin

Davíð Jónsson

Keppti á þónokkrum skeiðkappreiðum í sumar. Stóð ofarlega í þeim öllum sem hann tók þátt í. Glóra frá Skógsskoti var hans helsta kappreiðarhross í sumar.

Ólafur Örn Þórðarson

Tók þátt í fjölda skeiðkappreiða á tveimur hestum þeim Læk frá Skák og Heiðu frá Skák með góðum árangri. Bæði hrossin eru úr hans eigin ræktun.

Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson

Tók þátt í fjölda skeiðkappreiða á skeiðhestinum sínum Seyð frá Gýgjarhóli. Sigraði skeiðleika nr 1 í 100m skeiði, og er með 5 besta tíma ársins í 100m skeiði 7,51 sek.

Heimahagabikarinn

Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg

Sigraði einstaklingsstigakeppnina í Áhugamannadeildinni 2020. Var í úrslitum í flestum keppnisgreinum sem hún tók þátt í á árinu.

Katrín Sigurðardóttir

Sigraði tölt T3 á Íþróttamóti Geysis. Var í a-úrslitum í öllum keppnisgreinum sem hún keppti á Ólínu frá Skeiðvöllum. Einnig keppti hún á Hauk frá Skeiðvöllum í fimmgangi með góðum árangri og Glóru frá Skógskoti í skeiðgreinum með góðum árangri og varð önnur á Áhugamannamóti Íslands.

Theodóra Jóna Guðnadóttir

Keppti bæði í gæðingakeppni og íþróttakeppni á árinu. Sigraði fjórgang V2 í opinn flokkur 2 á Reykjavíkurmeistaramótinu. Varð í öðrusæti á gæðingamóti Geysis í b-flokki áhugamanna. Hennar keppnishestur í sumar var Gerpla frá Þúfu í Landeyjum.

 

Mjölnisbikarinn

Elvar Þormarsson og Katla frá Fornusöndum með einkunnina 7,73

Keppnishestabú Geysis

Árbæjarhjáleiga 2

Mörg hross frá Árbæjarhjáleigu 2 hafa staðið sig gríðarlega vel á keppnisbrautinni á liðnu keppnistímabili. Hvað atkvæðamestur er skeiðhesturinn Kjarkur, tvöfaldur Reykjavíkurmeistari bæði í 100m skeiði og 250m skeiði. Er með besta tíma í 100m skeiði á árinu 7,32 sek. Besta tíman í 150m skeiði 14,17 sek og besta tíman í 250m skeiði  21,57 sek.

Þrjú hross voru í topp 10 í F1 fullorðna á Þýska Meistaramótinu en það voru Eldur 4 sæti eftir forkeppni með einkunnina 6,97, Ófeigur 2.sæti í b-úrslitum (7 sæti) með einkunnina 6,93 og Skúli varð í öðru sæti með einkunnina 7,24.

Aría frá Árbæjarhjáleigu 2 keppti í ungmennaflokki á Þýska Meistaramótinu og sigraði V1 með einkunnina 6,77 og varð einnig í þriðja sæti í T1 á sama móti.

Kirkjubær

Fjöldi hrossa tók þátt í nánast öllum keppnisgreinum í íþróttakeppni og gæðingkeppni. Mörg hross komust í úrslit í þeim greinum sem þau tóku þátt í. Má nefna Ás, Bylur, Dropi, Ísafold, Ísrún, Sólveig og Kornilíus sem eru nokkur af þeim hrossum sem kepptu frá Kirkjubæ á árinu.

Ísrún sigraði tölt T1 á Hafnarfjarðarmeistaramótinu. Ás varð annar á Íþróttamót Geysis í fimmgangi. Sólveig sigraði 100m skeið á Gæðingaveislu Sörla og Gæðingamóti Sörla.

Strandarhjáleiga

Hross frá Strandarhjáleigu hafa staðið sig vel á keppnisvellinum bæði hér á landi sem og erlendis.

-Kjalar frá Strandarhjáleigu en hann varð þýskur meistari í V1 með 7.83 í einkunn ,4.sæti  í T1 með 8.17 í einkunn á sama móti og þýskur meistari í samanlögðum fjórgangsgreinum. Knapi Lisa Drath

– Byr frá Strandarhjáleigu varð þýskur meistari í F1 með 7.38 í einkunn. Og endaði í 3ja sæti í samanlögðum fimmgangsgreinum. Einnig keppti hann á Worldtolt 2020 og endaði í 2.sæti í F1 með 7.24 í einkunn. knapi Lisa Drath

– Tíbrá frá Strandarhjáleigu á Gæðingamóti á Flúðum í barnaflokk, fékk 8.36 í forkeppni, 8.47 í úrslitum 7.sæti . Knapi Eik Elvarsdóttir

Hrossaræktarbú Geysis

Fet var með 16 sýnd hross á árinu í fullnaðardóm, þar af voru 12 með aðaleinkunn yfir 8.00 og meðaleinkunn aðaleinkunnar 8,34.

 

Hjarðartún var með 6 sýnd hross á árinu í fullnaðardóm, þar af voru 5 þeirra með aðaleinkunn yfir 8.00 og meðaleinkunn aðaleinkunnar 8,45.

Stóra-Hof var með 7 sýnd hross á árinu í fullnaðardóm, þar af voru 4 þeirra með aðaleinkunn yfir 8.00 og meðaleinkunn aðaleinkunnar 8,34.

Kynbótahross ræktuð af Geysisfélögum

4 Vetra stóðhestur

· Sólfaxi frá Herriðarhóli 8.05

· Ræktandi Ólafur Arnar Jónsson

· Óríon frá Strandarhöfði 8.05

· Ræktandi – Strandarhöfuð ehf

4 vetra hryssa

· Vala frá Hjarðartúni 8.07

· Ræktandi Óskar Eyjólfsson

5 vetra stóðhestur

· Hilmir frá Árbæjarhjáleigu II 8.64

· Ræktandi Marjolijn Tiepen

5 vetra hryssa

· Kastanía frá Kvistum 8.43

· Ræktandi Kvistir ehf

6 vetra stóðhestur

· Fenrir frá Feti 8.57

· Ræktandi Hrossaræktarbúið FET ehf

6 vetra hryssa

· Svarta Perla frá Álfhólum 8.54

· Ræktandi Sara Ástþórsdóttir

7 vetra stóðhestur

· Þór frá Stóra-Hofi 8.84

· Ræktandi Bæring Sigurbjörnsson

7 vetra hryssa

· Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli 8.86

· Ræktandi Ásmundur Þór Þórisson og Helga Friðgeirsdóttir

Hæst dæmda hryssa ræktuð og í eigu Geysisfélaga

· Gefn frá Feti 8.47

· Ræktandi Hrossaræktarbuið FET ehf

Hæst dæmdi stóðhestur ræktaður og í eigu Geysisfélaga

· Þór frá Stóra-Hofi 8.84

· Ræktandi Bæring Sigurbjörnsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link