Nýárskveðja frá Rangárbökkum

  • 5. janúar 2021
  • Fréttir
Afhending Sleipnisbikarsins á Landssýningu kynbótahrossa sem fram fór á Rangárbökkum í sumar. Handhafar Sleipnisbikarins eru eigendur Skýs frá Skálakoti. þeir Guðmundur J. Viðarsson og Jakob Svavar Sigurðsson. F.v. Jakob Svavar Sigurðsson, Guðmundur J. Viðarsson, Gunnar Þorgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands og Sveinn Steinarsson formaður Félags Hrossabænda. Ljósmyndari: Louisa Hackl

Stórn Rangárbakka, þjóðaleikvangs íslenska hestsins sendir hestamönnum og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðilegt nýtt ár og þakkar samstarfið á liðnum árum.

Að baki er sérstakt ár sem lengi verður í minnum haft. Landsmóti sem vera átti á Rangárbökkum varð að fresta vegna Covid-19 og einnig Íslandsmóti og Suðurlandsmóti. En þrátt fyrir takmarkanir tókst að halda allmarga viðburði s.s. Landssýningu kynbótahrossa, Íþróttamót Geysis, Gæðingamót Geysis, Meistaramót Íslands í gæðingakeppni og fl. Einnig voru kynbótasýningar í gangi í 7 vikur á Rangárbökkum.

Mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning svæðisins til að gera það betur í stakk búið að taka á móti viðburðum. Tekist hefur að endurnýja eldhús og veislusal, bæta aðstöðu í reiðhöll, endurnýja þak á hesthúsi og lagfæra velli. Einnig hefur verið unnið að uppgræðslu og trjárækt á svæðinu undanfarin ár.
Stjórn Rangárbakka vill færa öllum sem lagt hafa hönd á plóg við hin ýmsu verkefni bestu þakkir. Með samstilltu átaki fjölda fólks, sjálfboðavinnu og stuðningi velunnara hefur tekist að bæta aðstöðu á Rangárbökkum til muna.

Hvað nýtt ár ber í skauti sér á eftir að koma í ljós en undirbúningur vegna LM 2022 fer í gang fljótlega á nýju ári og dagskrá sumarsins er óðum að taka á sig mynd. Við horfum björtum augum fram á veginn.
F.h. stjórnar Rangárbakka
Kristinn Guðnason

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link