Árbók Eiðfaxa 2020 komin í prent

  • 8. janúar 2021
  • Fréttir

Þessa dagana er verið að prenta Árbók Eiðfaxa, en þetta er í fyrsta sinn sem Eiðfaxi gefur út sérstakan annál með þessum hætti. Árbókin er afar efnismikil, hvorki meira né minna en 276 bls, með umfjallanir í máli og myndum yfir allt það markverðasta af keppnis- og kynbótabrautinni á Íslandi á því sérstaka ári sem 2020 var.

Forsíðu Árbókarinnar prýða að þessu sinni knapi ársins, Jakob Svavar Sigurðsson og Sleipnisbikarhafinn Skýr frá Skálakoti, en í bókinni er að finna viðtal við Jakob Svavar þar sem hann rifjar upp árangur sinn á árinu sem og markverða atburði. Einn af helstu keppnishestum Jakobs síðustu ár, stóðhesturinn Konsert frá Hofi, yfirgaf fósturjörðina á haustmánuðum og aðspurður um hvort hann sjái á eftir honum, segir Jakob meðal annars: „Jú ég sé mikið á eftir honum, þetta er einstakur hestur sem reyndi stundum á mann sem þjálfara og kenndi mér margt. Hann gaf mér margar frábærar stundir og er með allra bestu hestum sem ég hef þjálfað.“

Við munum halda áfram næstu daga að kynna meira efni úr Árbókinni, enda af nægu að taka. Gera má ráð fyrir að Árbókin komi inn um bréfalúgur áskrifenda í lok næstu viku og verður hún í framhaldinu einnig fáanleg í öllum helstu hestavöruverslunum. Ekki missa af Árbók Eiðfaxa!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link