Stefnir í spennandi keppni í fjórgangi í Meistaradeild Líflands

Lið Hjarðartúns sigraði 2020
Keppni í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum hefur göngu sína annað kvöld, fimmtudaginn 28.janúar, þegar keppt verður í fjórgangi. Eftirvæntingin er mikil meðal hestaunnenda víðs vegar um heiminn sem munu sitja límdir við skjátæki sín, því engir áhorfendur verða í sal TM hallarinnar í Víðidal í þetta skiptið.
Ráslistinn liggur fyrir en 24 knapar úr átta mismunandi liðum etja kappi og við lestur hans er ljóst að hart verður barist um sigur og úrslitasæti.
Fjögur fræknu líkleg til sigurs
Fyrir fram verður að teljast líklegt að fjögur efstu pör á stöðulistum ársins 2020 í fjórgangi (V1) séu sigurstranglegust. Það eru þau Ragnhildur Haraldsdóttir og Vákur frá Vatnsenda (7,70), Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi (7,63), Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Óskar frá Breiðstöðum (7,60) og sigurvegarinn í þessari grein frá því í fyrra Jakob Svavar Sigurðsson og Hálfmáni frá Steinsholti (7,57). En eins og allir vita þarf ekki mikið útaf af bregða hjá þessum frábæru knöpum svo aðrir hrifsi til sín efsta sætið og ljóst er að margir eru líklegir til þess að valda usla.
Af þeim 7 pörum sem kepptu til úrslita í fyrra eru 6 þeirra á meðal keppenda í ár en það eru auk Jakobs Svavars og Jóhönnu Margrétar þau Matthías Leó og Taktur frá Vakurstöðum, Elin Holst og Frami frá Ketilsstöðum, Hulda Gústafsdóttir og Sesar frá Lönguskák og Hanna Rún Ingibergsdóttir og Grímur frá Skógarási. Auk þessara knapa var Árni Björn Pálsson í úrslitum í fyrra á Hátíð frá Hemlu II en í ár mætir hann á hinni fjaðurmögnuðu Svörtu Perlu frá Álfhólum og verður spennandi að sjá hvernig tekst til með hana, en ætla má að þau séu til alls líkleg. Þær Glódís Rún á Glymjanda frá Íbishóli og Ragnhildur á Váki voru jafnar í dauðasætinu svo kallaða í fyrra og voru næstar því að komast í úrslit en þangað ætla þær sér í ár.
Án þess að ætlunin sé að telja upp alla þá knapa sem eru á ráslistum og hverjir þeirra geti blandað sé í toppbaráttuna er ekki hægt annað en að nefna Viðar Ingólfsson á Maístjörnu frá Árbæjarhjáleigu II, Þórarinn Ragnarsson og Leik frá Vesturkoti, Þórdísi Erlu og Feng frá Auðsholtshjáleigu, Olil Amble á Glampa frá Ketilsstöðum og Hinrik Bragason á Sigri frá Stóra-Vatnsskarði.
Keppnistímabilið í hestaíþróttum er við það að hefjast. Fiðringur er í kominn í knapa og áhorfendur eru farnir að telja niður, Meistaradeildin er stóra sviðið á vetrarmánuðum og megi sá besti vinna.