Meistaradeild Ungmenna og Dýralæknar Sandhólaferju 2021
Nú er spennan í hámarki og það styttist í fyrsta keppniskvöld í Meistaradeild Ungmenna og Dýralækna Sandhólaferju 2021 en það verður föstudagskvöldið 5.feb og hefst keppni kl 19:00.
Keppnin fer fram í Fákaseli í Ölfusi og fyrsta keppnisgreinin er fjórgangur V1.
Það eru 5 lið sem taka þátt en það eru
Lið Pálmatrés
Lið Team Top Reiter
Lið Team IceHest
Lið Vallarbraut ehf
Lið Ká-Raf ehf
Vegna sóttvarnarreglna þá eru engir áhorfendur leyfðir í höllinni en það geta allir fylgst með þessum snjöllu ungu knöpum framtíðarinnar á beinu streymi á Alendis.is
Stjórn MDU

Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH