Allt getur gerst í keppni kvöldsins

  • 11. febrúar 2021
  • Fréttir

Elin Holst og Frami frá Ketilsstöðum.

Eiðfaxi rýnir í slaktaumatölt Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum

Í kvöld fer fram annað mótið af þeim sex sem framundan eru í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum árið 2021. Keppt er í slaktaumatölti og hefst keppni klukkan 20:05. Áhorfendur munu áfram þurfa að horfa á mótið heima í stofu og er allt í beinni á RÚV2.

Margir frábærir keppendur eru á ráslistanum og er ekki úr vegi að rýna í hann og velta því fyrir sér hvaða knapar teljast sigurstranglegir í kvöld.

Á ráslista má t.d. sjá tvö pör sem hafa sigrað þessa grein á Íslandsmóti en það eru þau Elin Holst og Frami frá Ketilsstöðum sem hlutu 8,88 í úrslitum árið 2016 og Helga Una Björnsdóttir og Þoka frá Hamarsey sem urðu Íslandsmeistarar árið 2019 með 8,25 í einkunn.

Alls voru átta knapar í úrslitum í þessari grein árið 2020 og eru fimm þeirra með sömu hesta og í fyrra. Þetta eru Teitur Árnason og Brúney, sem unnu þessa grein í fyrra, Arnar Bjarki Sigurðarson og Hrafnfaxi, sem urðu í öðru sæti. Viðar Ingólfsson og Skál frá Skör, sem enduðu í fjórða, áður nefnd Helga Una og Þoka sem urðu í sjötta sæti og Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður sem urðu í áttunda sæti.

Af öðrum knöpum sem eru á ráslista verður að nefna Aðalheiði Önnu Guðjónsdóttur og Óskar frá Breiðstöðum sem hafa verið ákaflega sigursæl í þessari grein og er engu logið þegar sagt er að þau hafi verið langefst á stöðulistum ársins 2020 með 8,63 í einkunn í forkeppni. Jakob Svavar Sigurðsson er einnig vel hestaður en hann mætir með Kopar frá Fákshólum en þeir eiga þriðju hæstu einkunn ársins í fyrra 7,70.

Í keppni sem þessari þar sem lítið má fara úrskeiðis er þó stutt á milli þess að knapar slái í gegn og þeir skjótist upp á toppinn eða þá að dýrkeypt mistök verði til þess að gera úti um vonir þeirra. Það verður því spennandi að fylgjast með keppni kvöldsins þar sem allt getur gerst.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link