Veffræðsla með Dr Susanne Braun fagdýralækni hesta og kírópraktor
Í dag miðvikudaginn 17. febrúar býður Lífland til veffræðsluerindis um heilsufar, fóðrun og atferli hrossa á húsi. Dr. Susanne Braun, fagdýralæknir hesta og kírópraktor, mun miðla af víðtækri þekkingu sinni í máli og myndum auk þess sem opið verður fyrir spurningar sem Susanne mun svara á milli dagskrárhluta.
Umfjöllunarefni veffræðslunnar er fjölbreytt og áhugavert og þar ættu flestir hestamenn að finna eitthvað sem þeir geta nýtt sér:
I Heilsufar og fóðurtengdir sjúkdómar
Taka inn á hús: Hvernig á að meta hestinn: Heilsa og holdafar
Ormasýking, húðvandamál, hrossasótt: Hvað er það og hvað veldur?
II Blóðsýni
Hvers vegna að taka blóðsýni?
Hvaða upplýsingar get ég fengið úr blóðsýni?
Hvaða afleiðingar fylgja efnaskorti?
III Fóður: Bætiefni og fóðurbætir
Þarf að gefa meira en gott hey?
Hverskonar fóður hentar mínum hesti?
Offóðrun, vanfóðrun og afleiðingar
IV Atferli og hegðunarvandamál
Hvernig líður hestinum mínum í stíunni?
Hvað er hegðunarvandamál?
Hvað get ég gert svo hestinum mínum leiðist ekki í stíunni?
Dr. Susanne Braun er íslenskum hestamönnum að góðu kunn. Susanne hefur starfað sem dýralæknir á Íslandi í hátt í tvo áratugi. Hún er sérfræðingur í hestasjúkdómum og auk þess IVCA kírópraktor og reiðkennari ásamt því að vera alþjóðlegur íþróttadómari. Í doktorsritgerð sinni „Health status in Icelandic Horses in Iceland and after import in Germany“ rannsakaði Susanne fjölmarga lífeðlis- og næringarfræðilega þætti í íslenskum hestum, bar saman við efnagreiningar á fóðri hérlendis sem erlendis og kannaði meðal annars hvaða áhrif þeir hefðu á heilsu hesta við álag af völdum flutninga. Susanne vinnur mikið með blóðsýni sem hún tekur úr hestum og sendir út til greiningar og byggir fyrirlestur hennar að talsverðu leyti á niðurstöðum eigin rannsókna.
Viðburðurinn hefst í dag kl 17:00 og er áætlaður taka um eina og hálfa klukkustund. Hann má finna hér
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH