Æskulýðsbikar FEIF 2020 til Sviss
Svissneska Íslandshestasambandið, IPVCH, setti æskulýðsstarf í algjöran forgang innan sambandsins, sem sést á því fjölbreytta starfi og þeim viðburðum sem voru í boði fyrir börn, unglinga og ungmenni um allt Sviss á síðasta ári. Þetta átak hefur skilað góðum árangri í nýliðun og fjöldi þátttakenda jókst mikið.
Óhefðbundnir viðburðir voru haldnir, eins og kynning á járningum þar sem notaðir voru fætur dauðra hrossa, kennsla i því að detta af baki á öruggan (og glæsilegan) hátt, og nýjar áherslur í því hvernig á að sýna hest í kynbótadómi. Þrátt fyrir heimsfaraldur, náði yngra landsliðið að fara í fjögurra daga æfingabúðir síðasta sumar og einnig aðra 11 daga af æfingum. Sviss mun halda FEIF Youth Cup árið 2022 og sá undirbúningur er kominn vel á veg og það verður spennandi fyrir alla þá sem heimsækja Sviss að fá að upplifa kraftinn og hugmyndaflugið sem ríkt hefur í Sviss á erfiðum tímum.
Til hamingju Sviss!
Hér má finna skýrslur æskulýðsnefnda nokkura aðildarlanda FEIF.
Sigurvegarar fyrri ára:
2006 – Bretland
2007 – Ísland
2008 – Svíþjóð
2009 – Holland
2010 – Austurríki
2011 – Holland
2012 – Þýskaland
2013 – Bandaríkin
2014 – Finnland
2015 – Svíþjóð
2016 – Frakkland
2017 – Danmörk
2018 – Holland
2019 – Austurríki
2020 – Sviss
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH