Niðurstaða dómstóls ÍSÍ

  • 18. febrúar 2021
  • Fréttir
Aðsend grein frá Kristjáni Bergssyni

Niðurstaða dómstóls ÍSÍ

 

Dómstóll ÍSÍ hefur nú ógilt úrskurð aganefndar LH þess efnis að fella skuli allan árangur keppenda á því móti úr gildi á þeim forsendum að mótið væri ólöglegt.  Dómstóll ÍSÍ snéri úrskurði aganefndar og dæmdi mótið gilt og allur árangur keppenda hefur nú verið færður inn á WF samkvæmt gildu móti.

Höfundur veltir fyrir því fyrir sér hvort stjórn LH muni nú senda mótið inn til aganefndar aftur eins og hún bað um með fyrri yfirlýsingu sinni þann 17.12. 2020? Eftir stendur sá keppandi sem að braut lög FEIF og LH um kappreiðareglur þess eðlis að ekki megi sama par keppa í 150 og 250m skeiði á sama móti. Skýrt er tekið fram í dómi ÍSÍ að stjórn geti leitast eftir leiðréttingu úrslita á mótum þó að langur tími sè liðinn frá því, og svo sannarlega hlýtur það að vera verkefni stjórnar í þessu tilfelli, þ.e.a.s. að fylgja því eftir að úrslit séu rétt og ekki séu þau fengin fram með þeim hætti að iþróttahreyfingin og andi hennar bíði álitshnekki.

Höfundur er lögfræðingur og áhugahestamaður.

Kristján Bergsson.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link