Nú reynir á hesta, knapa og dómara
Jakob Svavar Sigurðsson og Skýr frá Skálakoti sigruðuð fimmgang Meistaradeildarinnar í fyrra.
Það er komið þriðju greininni í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum og nú reynir á knapa, hesta og ekki síst dómara, því keppt verður í fimmgangi. Þessi grein er tæknilega mjög erfið og er oft talað um hana sem eina erfiðustu hringvallargrein hestaíþróttanna. Ekki minnkar flækjustigið þegar keppt er innanhúss, eins og raunin er í þetta skiptið. Á tíðum hefur það reynst knöpum erfitt að fá hesta sína til þess að beita sér fram og skeiða í hreinum takti. Enda sprettfærið stutt og krefst útfærslan á skeiðsýningu mikillar þjálni en á sama tíma snerpu og sprengikrafts.
Dómarar hafa of oft fallið í þá gildru í þessari grein að hleypa taktgöllum í gegn enda á stundum ekki skrýtið þar sem sjónarhorn þeirra við skeiðdómgæslu er erfitt þegar þeir eru staðsettir inn í miðju keppnisvallarins, horfa ýmist framan á eða aftan á keppnishesta.
Allt þá er þrennt er
Síðastliðin þrjú ár hefur Jakob Svavar sigrað í þessari grein á Skýr frá Skálakoti en ljóst er að ekki verður framhald á því þar sem hann mætir ekki til leiks í ár og því á máltækið allt þá er þrennt er vel við.
Af ráslistanum er það að frétta að hestakostur er frábær og hefur því verið fleygt fram að sjaldan eða aldrei hafi spennan verið jafn mikil fyrir-fram og nú.
Þrír knapar sem riðu til úrslita í fyrra mæta með sömu hesta í ár. Þetta eru Eyrún Ýr Pálsdóttir og Hrannar frá Flugumýri sem urðu í 2.sæti, Olil Amble og Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum sem urðu í 3.sæti og Viðar Ingólfsson og Huginn frá Bergi sem urði í 5.sæti.
Þá eru þar einnig pör sem hafa verið í úrslitum í þessari grein á fyrri árum líkt og Hinrik Bragason og Byr frá Borgarnesi sem voru í úrslitum 2019 og Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Héðinn Skúli frá Oddhóli sem voru í úrslitum 2018.
En hvað gerðist í fyrra eða hitteðfyrra kemur að litum notum þegar keppni hefst og í grein sem þessari getur allt gerst.
Hestamenn um gjörvalla veröld verða límdir við sjónvarpsskjáinn og brekkudómarar heimsins verða með allt á hreinu. Eftirvæntingin er mikil og er því lítið annað eftir en að segja, megi sá besti vinna.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH