Liðsstjóri óskast
FEIF Youth Cup 2018 verður haldinn í Axevalla Travbana í Svíþjóð 28. júlí – 4. ágúst og er fyrir unglinga sem verða 14-17 ára 2018. Youth Cup er alþjóðleg keppni þar sem keppt er í T7, T3, T6, PP2, P2, V2, F2, V5, FR1, TR1, CR1, TiH Level 1, FS3, Team test. Ísland fær að senda 8 fulltrúa á mótið, auk fararstjóra.
Æskulýðsnefnd LH auglýsir nú eftir fararstjóra til að fara með hópnum. Þær kröfur sem gerðar eru til fararstjóra á vegum LH eru:
– Góð enskukunnátta
– Þekking á keppni og/eða keppnisreynsla
– Góðir skipulagshæfileikar
Meginverkefni liðsstjóra er að sjá um eitt alþjóðlegt lið unglinga sem samanstendur af 6 þátttakendum. Í því felst ábyrgð á því að skapa jákvæðan liðsanda, fylgja liðinu á allar æfingar þess og keppnir, bera ábyrgð á skráningum í keppnir, fara með liðinu í mat og fleira þess háttar. Liðsstjórinn þarf að þekkja reglur FY Cup sem og reglur FEIF. Liðsstjórinn er að auki ábyrgur fyrir liðinu sínu yfir daginn, á milli æfinga og hann tekur þátt í æfingaviðburði liðsstjóra í byrjun móts og allir liðsttjórar taka þátt í daglegum fundum allra liðsstjóra.
Hafir þú áhuga á að sækja um, fylltu út umsóknareyðublaðið á vef LH.
Nánari upplýsingar eru veittar á [email protected] og einnig hjá Helgu B. Helgadóttur, formanni æskulýðsnefndar LH í síma 820 2313.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH