Úrslit úr slaktaumatölti G.Hjálmarssonar-deildarinnar

  • 14. mars 2021
  • Fréttir

Í dag, laugardaginn 13.mars var haldið annað mótið í G-Hjálmarsson deildinni hjá Léttismönnum og var í þetta sinn keppt í slaktaumatölti. Góð skráning var á mótið veðrið fallegt þó nokkrum knöpum hefði geta orðið kalt úti. Keppt var í meira vönum T2 og minna vönum T4. Var það Jóhann Svanur Stefánsson sem sigraði minna vana á hesti sínum Storm frá Feti með einkunnina 6,83. Var hann einnig efstur eftir forkeppni. Í meira vönum sigraði Tryggvi Björnsson á Létti frá Þjóðólfshaga 3 með einkunnina 6,54.

Stutt og laggott mót sem heppnaðist vel. Næsta mót í deildinni er 2.apríl og verður keppt í fimmgangi.

Myndin er af Jóhanni Svani og Stormi frá Feti og tók Svana Karlsdóttir myndina. Hægt er að sjá fleiri myndir af mótinu á facebook síðu hennar – Svana Mynd Skot

Úrslitin frá deginum voru eftirfarandi

 

minna vanir

A úrslit
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Jóhann Svanur Stefánsson Stormur frá Feti Brúnn/milli-einlitt Léttir 6,83
2 Rúnar Júlíus Gunnarsson Valur frá Tóftum Brúnn/milli-einlitt Hringur 6,75
3 Bjarney Anna Þórsdóttir Spuni frá Hnjúkahlíð Rauður/milli-einlitt Léttir 6,33
4 Andrea Þorvaldsdóttir Stjörnufákur frá Garðsá Jarpur/milli-stjörnótt Léttir 5,96
5 María Marta Bjarkadóttir Vermir frá Hólabrekku Jarpur/milli-einlitt Grani 5,46
6 Hreinn Haukur Pálsson Demantur frá Hraukbæ Rauður/milli-skjótt Léttir 5,42

 

Meira vanir

A úrslit
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Tryggvi Björnsson Léttir frá Þjóðólfshaga 3 Brúnn/dökk/sv.einlitt Léttir 6,54
2 Atli Freyr Maríönnuson Tangó frá Gljúfurárholti Jarpur/milli-einlitt Léttir 6,08
3 Agnar Þór Magnússon Kjarni frá Draflastöðum Rauður/milli-blesótt Léttir 6,04
4 Camilla Höj Aþena frá Hrafnagili Jarpur/milli-einlitt Léttir 5,58
5 Anna Catharina Gros Sátt frá Grafarkoti Brúnn/milli-skjótt Léttir 5,33
6 Björgvin Daði Sverrisson Meitill frá Akureyri Jarpur/milli-einlitt Léttir 5,12
7 Eva María Aradóttir Svörður frá Sámsstöðum Bleikur/álótturstjörnótt Léttir 5,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar