Bein útsending frá Meistaradeild Líflands á RÚV kl. 14 í dag.
Keppt verður í gæðingaskeiði og 150 m skeiði í Meistaradeild Líflands í dag.
Mótið hefst kl. 14 og fer fram á Brávöllum á Selfossi.
Bein útsending verður frá mótinu í sjónvarpi á RÚV 2 og á vefnum ruv.is innanlands.
Ráslistinn er spennandi og mikilvæg stig í boði, svo reikna má með hörkukeppni sem enginn vill missa af.