Keppt var í tölti í dag, 21. mars í Meistaradeild Líflands og æskunnar og bar mótið nafnið „Hjarðartúnstöltið“ þar sem hrossaræktarbúið Hjarðartún styrkti mótið. Mótið fór að venju fram í TM-höllinni í Víðidal.
Sigurður Baldur sigurvegari Hjarðartúnstöltsins
Eftir forkeppnina voru tveir knapar jafnir og efstir með 6,93. Það voru þau Kolbrún Katla Halldórsdóttir á Sigurrósu frá Söðulsholti og Sigurður Baldur Ríkharðsson á Auðdísi frá Traðalandi. Í heildina var keppnin jöfn og mjótt var á munum milli sæta.
Efstur inn í B-úrslitin komu þrír knapar jafnir með 6,50. Það voru þau Sigurður Steingrímsson á Eik frá Sælukoti, Hrund Ásbjörnsdóttir á Rektori frá Melabergi og Sigurbjörg Helgadóttir á Elvu frá Auðsholtshjáleigu. Eftir harða keppni vann Sigurður úrslitin með nokkrum mun.

Hans Þór Hilmarsson og Kristín Heimisdóttir afhentu verðlaunin fyrir hönd Hjarðartúnsbúsins.
Myndir: Ólafur Ingi Ólafsson.
Í A-úrslitum voru þrír knapar úr liði Top Reiter, enda fóru leikar þannig að þau urðu stigahæst í dag með 87 stig. Það var mál manna að úrslitin hefðu verið gríðarsterk og vel riðin og má sjá á öllum tölum hversu litlu munaði. Að lokum stóð Sigurður Baldur efstur á Auðdísi með 7,29, önnur varð Hulda María Sveinbjörnsdóttir á Garpi frá Skúfslæk með 7,.22 og þriðja varð Signý Sól Snorradóttir á Rafni frá Melabergi með 7,17. Öll keppa þau fyrir lið Top Reiter.
Forkeppni
| Sæti | Knapi | Hross | Lið | Einkunn |
| 1-2 | Sigurður Baldur Ríkharðsson | Auðdís frá Traðarlandi | Top Reiter | 6,93 |
| 1-2 | Kolbrún Katla Halldórsdóttir | Sigurrós frá Söðulsholti | Icewear | 6,93 |
| 3 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir | Garpur frá Skúfslæk | Top Reiter | 6,80 |
| 4 | Signý Sól Snorradóttir | Rafn frá Melabergi | Top Reiter | 6,73 |
| 5 | Matthías Sigurðsson | Drottning frá Íbishóli | Ganghestar / Hamarsey | 6,63 |
| 6-8 | Sigurður Steingrímsson | Eik frá Sælukoti | Fisk Mos | 6,50 |
| 6-8 | Hrund Ásbjörnsdóttir | Rektor frá Melabergi | Byko Selfoss | 6,50 |
| 6-8 | Sigurbjörg Helgadóttir | Elva frá Auðsholtshjáleigu | Helgatún/Fákafar | 6,50 |
| 9-10 | Benedikt Ólafsson | Rökkvi frá Ólafshaga | Hrímnir | 6,43 |
| 9-10 | Védís Huld Sigurðardóttir | Dökkvi frá Ingólfshvoli | Hrímnir | 6,43 |
| 11 | Hekla Rán Hannesdóttir | Þoka frá Hamarsey | Ganghestar / Hamarsey | 6,40 |
| 12 | Ragnar Snær Viðarsson | Rauðka frá Ketilsstöðum | Hrímnir | 6,37 |
| 13 | Guðný Dís Jónsdóttir | Roði frá Margrétarhofi | Hofsstaðir/Sindrastaðir | 6,33 |
| 14-17 | Eygló Hildur Ásgeirsdóttir | Saga frá Dalsholti | Hofsstaðir/Sindrastaðir | 6,27 |
| 14-17 | Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal | Daníel frá Vatnsleysu | Hofsstaðir/Sindrastaðir | 6,27 |
| 14-17 | Eva Kærnested | Bragur frá Steinnesi | Hrímnir | 6,27 |
| 14-17 | Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson | Polka frá Tvennu | Top Reiter | 6,27 |
| 18-19 | Elva Rún Jónsdóttir | Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ | Hofsstaðir/Sindrastaðir | 6,20 |
| 18-19 | Kristján Árni Birgisson | Viðar frá Eikarbrekku | Fisk Mos | 6,20 |
| 20-21 | Lilja Rún Sigurjónsdóttir | Arion frá Miklholti | Sportfákar/Fákaland Export | 6,13 |
| 20-21 | Anna María Bjarnadóttir | Tónn frá Hjarðartúni | Helgatún/Fákafar | 6,13 |
| 22-23 | Dagur Sigurðarson | Fold frá Jaðri | Nettó | 5,93 |
| 22-23 | Viktoría Von Ragnarsdóttir | Nemi frá Grafarkoti | Byko Selfoss | 5,93 |
| 24 | Lilja Dögg Ágústsdóttir | Sólborg frá Sigurvöllum | SS búvörur | 5,80 |
| 25-28 | Kolbrún Sif Sindradóttir | Bylur frá Kirkjubæ | Icewear | 5,77 |
| 25-28 | Þorbjörg H. Sveinbjörnsdóttir | Ísó frá Grafarkoti | SS búvörur | 5,77 |
| 25-28 | Sara Dís Snorradóttir | Gustur frá Stykkishólmi | Sportfákar/Fákaland Export | 5,77 |
| 25-28 | Selma Leifsdóttir | Dímon frá Laugarbökkum | Ganghestar / Hamarsey | 5,77 |
| 29-30 | Natalía Rán Leonsdóttir | Stjörnunótt frá Litlu-Gröf | Nettó | 5,73 |
| 29-30 | Hildur Dís Árnadóttir | Embla frá Þjóðólfshaga 1 | SS búvörur | 5,73 |
| 31-32 | Sigrún Helga Halldórsdóttir | Gefjun frá Bjargshóli | Sportfákar/Fákaland Export | 5,70 |
| 31-32 | Jón Ársæll Bergmann | Diljá frá Bakkakoti | Ganghestar / Hamarsey | 5,70 |
| 33 | Friðrik Snær Friðriksson | Ísafold frá Kirkjubæ | Nettó | 5,67 |
| 34 | Eydís Ósk Sævarsdóttir | Heiða frá Skúmsstöðum | Helgatún/Fákafar | 5,57 |
| 35-37 | Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir | Þytur frá Stykkishólmi | Icewear | 5,50 |
| 35-37 | Herdís Björg Jóhannsdóttir | Snillingur frá Sólheimum | SS búvörur | 5,50 |
| 35-37 | Þórey Þula Helgadóttir | Bragur frá Túnsbergi | Helgatún/Fákafar | 5,50 |
| 38 | Kristín Karlsdóttir | Ómur frá Brimilsvöllum | Icewear | 5,47 |
| 39 | Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir | Komma frá Traðarlandi | Sportfákar/Fákaland Export | 5,43 |
| 40 | Sölvi Þór Oddrúnarson | Trausti frá Glæsibæ | Nettó | 5,37 |
| 41 | Arndís Ólafsdóttir | Dáð frá Jórvík 1 | Byko Selfoss | 5,30 |
| 42 | Oddur Carl Arason | Hlynur frá Húsafelli | Fisk Mos | 4,97 |
| 43 | Hrefna Sif Jónasdóttir | Hrund frá Hrafnsholti | Byko Selfoss | 3,70 |
| 44 | Sveinn Sölvi Petersen | Askja frá Ármóti | Fisk Mos | 3,63 |
|
B úrslit |
||||
| Sæti | Knapi | Hross | Lið | Einkunn |
| 6 | Sigurður Steingrímsson | Eik frá Sælukoti | Fisk Mos | 6,94 |
| 7 | Benedikt Ólafsson | Rökkvi frá Ólafshaga | Hrímnir | 6,72 |
| 8 | Hrund Ásbjörnsdóttir | Rektor frá Melabergi | Byko Selfoss | 6,61 |
| 9 | Védís Huld Sigurðardóttir | Dökkvi frá Ingólfshvoli | Hrímnir | 6,56 |
| 10 | Sigurbjörg Helgadóttir | Elva frá Auðsholtshjáleigu | Helgatún/Fákafar | 6,44 |
|
A úrslit |
||||
| Sæti | Knapi | Hross | Lið | Einkunn |
| 1 | Sigurður Baldur Ríkharðsson | Auðdís frá Traðarlandi | Top Reiter | 7,28 |
| 2 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir | Garpur frá Skúfslæk | Top Reiter | 7,22 |
| 3 | Signý Sól Snorradóttir | Rafn frá Melabergi | Top Reiter | 7,17 |
| 4 | Kolbrún Katla Halldórsdóttir | Sigurrós frá Söðulsholti | Icewear | 7,11 |
| 5 | Matthías Sigurðsson | Drottning frá Íbishóli | Ganghestar / Hamarsey | 6,94 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH