Ég fékk bara hálfgerða gæsahúð
Krás frá Laugarvatni. Knapi er Guðmundur (Mummi) Arnarson. Mynd: Úr einkasafni
Eiðfaxi Vetur mallar nú í prentvélunum, ríflega eitt hundrað blaðsíður af skemmtun og fróðleik fyrir hestafólk. Á meðal efnis í Eiðfaxa Vetur er viðtal við feðgana Arnar Guðmundsson og Guðmund (Mumma) son hans, en þeir eru jafnan kenndir við verslun sína Ástund. Feðgarnir eru einnig áhugasamir hestamenn og hrossaræktendur og úr ræktun þeirra hafa komið úrvalshross. Stofnhryssa þeirra feðga var gæðingurinn Krás frá Laugarvatni og Arnar rifjar upp í viðtalinu þegar hann sá hana fyrst:
„Eiríkur heitinn Guðmundsson,sá mikli snillingur, fann þessa hryssu fyrir okkur og mælti með henni. Þeir voru nú ekki margir spekingarnir sem voru tilbúnir að kvitta upp á að þessi hryssa myndi reynast vel í ræktun en reynslan varð allt önnur. Þetta var um vorið 1991 er ég fór að kíkja á gripinn. Hún var þá fylfull og á útigangi, feit og loðin eftir því, en það var einhver ára yfir henni og ég fékk bara hálfgerða gæsahúð við að horfa á hana þarna. Þar með var ekki aftur snúið.“
Eiðfaxi Vetur ætti að berast áskrifendum fyrir páska auk þess að vera til sölu í öllum helstu hestavöruverslunum landsins. Tryggðu þér þína áskrift að Eiðfaxa hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum