Alendis og LH undirrita samstarfssamning

  • 25. mars 2021
  • Fréttir

Alendis TV & Landssamband hestamannafélaga hafa gert með sér spennandi samstarfssamning til þriggja ára. Alendis TV mun þar með sjá um framleiðslu og útsendingar frá Íslandsmótum, Allra Sterkustu og fleiri viðburðum sem haldnir eru á vegum LH.

Markmið samstarfsins er að efla starf landssambandsins á heimsvísu og opna stærri markaðsglugga fyrir knapa inn á erlendan markað. Til dæmis með sýnikennslum, kynningu á landsliðsknöpum og þáttagerð í kringum landsliðið.

Fyrsti viðburður sem framleiddur verður í þessu samstarfi er Allra Sterkustu, sem stefnt er á að halda í Samskipahöllinni þann 1. maí næstkomandi.

Jóhann Hinrik Jónsson, Edda Hrund Hinriksdóttir & Kristinn Skúlason hittust til undirskriftar á samningnum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar