Lokamóti Meistaradeildar ungmenna frestað um óákveðinn tíma
Stjórn Meistaradeildar ungmenna og Dýralækna Sandhólaferju hefur tekið ákvörðun um að fresta um óákveðinn tíma lokamóti deildarinnar sem fara átti fram í Ingólfshvoli miðvikudaginn 31.mars næstkomandi og keppa átti í tölti T1. Er þetta gert í kjölfarið af hertum sóttvarnarreglum.
Deildin er hugsuð til að auka metnað þeirra sem taka þátt og hafa skemmtun og sýnileika keppenda að leiðarljósi.
Við munum halda veglegt og flott lokamót þegar fram líða stundir og tíminn einn leiðir það í ljós hvenær það verður. Það eiga þessir flottu og efnilegu knapar deildarinnar skilið.
Njótið páskana eins og kostur er. Förum eftir sóttvarnarreglum til að þetta tímabil verði sem styðst.
Stjórn Meistaradeild Ungmenna og Dýralæknar Sandhólaferju.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH