Úrslitin ráðast á morgun
Lokamót Meistaradeildar í hestaíþróttum verður á morgun, föstudaginn 10.apríl. Mótið byrjar kl. 18:30 á slaktaumatölti en keppt verður einnig í flugskeiði. Spennandi verður að sjá hver verður Meistari árins 2015. Árni Björn leiðir einstaklingskeppnina fyrir lokamótið með 48 stig en á eftir honum er Ísólfur Líndal með 32 stig og þriðji er Sigurbjörn með 28,5 stig.
Sigurbjörn sigraði slaktaumatöltið í fyrra á Jarli frá Mið-Fossum og ætla þeir félagar að mæta aftur til leiks. Bergur Jónsson var annar í fyrra á Frama frá Ketilsstöðum og eru þeir einnig skráðir sem og Reynir Örn og Greifi en þeir urðu í þriðja sæti í fyrra. Reynir og Greifi eru einnig ríkjandi Íslandsmeistarar í slaktaumatölti og hafa þeir félagar alltaf verið sterkir í þeirri grein. Greifi er þó ekki eini Íslandsmeistarinn sem mætir en John K. Sigurjónsson er skráður á Íslandsmeistaranum í unglingaflokki, Straum frá Sörlatungu og Ólafur Ásgeirsson á Íslandsmeistaranum í ungmennaflokki, Skorra frá Skriðulandi.
Guðmar Þór Pétursson sigraði flugskeiðið í fyrra á Viljari frá Skjólbrekku. Þeir mæta aftur til leiks en þó með smá breytingum. Guðmar verður á öðrum hesti og Viljar með annan knapa. Ísólfur Líndal Þórisson mætir á Viljari og ætlar sér eflaust sigur í skeiðinu. Bjarni Bjarnason og Hera hafa alltaf verið sterk í flugskeiðinu og eru þau skráð en þau voru í öðru sæti í fyrra.
Liðakeppnin er mjög jöfn og getur hún farið hvernig sem er. Top Reiter/Sólning nældu sér í toppsætið á skeiðmótinu þar síðust helgi og er nú með 260 stig. Auðsholtshjáleiga er í öðru sæti með 247,5 stig og þar rétt á eftir er lið Lýsi/Oddhóls/Þjóðólfshaga með 245,5 stig. Hægt er að sjá nánar um stöðuna hér.
Húsið opnar 17:00 en Fákasel býður upp á hlaðborð fyrir mótið eins og venjulega. Við hvetjum alla til að mæta snemma og gæða sér á kræsingunum.
Ráslistar:
Slaktaumatölt
1 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Terna frá Auðsholtshjáleigu
2 Guðmundur Björgvins Nös frá Leirubakka
3 Sigurður Vignir Matthíasson Tyrfingur frá Miðhjáleigu
4 Lena Zielinski Melkorka frá Hárlaugsstöðum 2
5 Guðmar Þór Pétursson Nóta frá Grímsstöðum
6 Hinrik Bragason Stimpill frá Vatni
7 Viðar Ingólfsson Hlekkur frá Bjarnarnesi
8 Helga Una Björnsdóttir Vág frá Höfðabakka
9 Ísólfur Líndal Þórisson Gulltoppur frá Þjóðólfshaga 1
10 Sigurður Sigurðarson Freyþór frá Ásbrú
11 Reynir Örn Pálmasson Greifi frá Holtsmúli 1
12 Árni Björn Pálsson Skíma frá Kvistum
13 Hulda Gústafsdóttir Kiljan frá Holtsmúla 1
14 Olil Amble Simbi frá Ketilsstöðum
15 Ólafur Ásgeirsson Skorri frá Skriðulandi
16 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Baldvin frá Stangarholti
17 Jakob S Sigurðsson Gloría frá Skúfslæk
18 Bergur Jónsson Frami frá Ketilsstöðum
19 Ragnar Tómasson Von frá Vindási
20 Eyrún Ýr Pálsdóttir Vordís frá Jaðri
21 Sigurbjörn Bárðarson Jarl frá Mið-Fossum
22 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Ljúfur frá Torfunesi
23 John Kristinn Sigurjónsson Straumur frá Sörlatungu
24 Daníel Jónsson Ymur frá Reynisvatni
Flugskeið
Helga Una Björnsdóttir Besti frá Upphafi
Guðmar Þór Pétursson Gutti frá Hvammi
Jakob S Sigurðsson Von frá Sturlureykjum 2
Edda Rún Ragnarsdóttir Léttir frá Eiríksstöðum
Bjarni Bjarnason Hera frá Þóroddsstöðum
Davíð Jónsson Irpa frá Borgarnesi
Þórdís Erla Gunnarsdóttir Lilja frá Dalbæ
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Ása frá Fremri-Gufudal
Guðmundur Björgvins Gjálp frá Ytra-Dalsgerði
Þórarinn Ragnarsson Funi frá Hofi
Sigurður Vignir Matthíasson Ormur frá Framnesi
Elvar Þormarsson Undrun frá Velli II
Daníel Jónsson Flugnir frá Ketilsstöðum
Gústaf Ásgeir Hinriksson Andri frá Lynghaga
Teitur Árnason Jökull frá Efri-Rauðalæk
Sigurður Sigurðarson Drift frá Hafsteinsstöðum
Ísólfur Líndal Þórisson Viljar frá Skjólbrekku
Bergur Jónsson Sædís frá Ketilsstöðum
Ragnar Tómasson Isabel frá Forsæti
Ólafur Ásgeirsson Tinna Svört frá Glæsibæ
Olil Amble Minning frá Ketilsstöðum
Hinrik Bragason Gnótt frá Hrygg
Árni Björn Pálsson Fróði frá Laugabóli
Sigurbjörn Bárðarson Flosi frá Keldudal
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson