Opið Íþróttamót Mána 1-2 maí 2021

  • 23. apríl 2021
  • Fréttir
Íþróttamót Mána verður haldið 1-2 maí 2021 með fyrirvara vegna sóttvarna.

Mótanefnd Mána mun halda Opna íþróttamót Mána dagana 1 – 2 maí.
Til að mótið geti farið fram verðum við að treysta á að keppendur og áhorfendur vinni með okkur að fylgja öllum reglum almannavarna sem munu gilda á þessum tíma.
Mikilvægt er að passa uppá 2 metra regluna!

Skráning á mótið mun standa yfir frá 22. apríl og til miðnættis 27. apríl (þriðjudag).
Ef keppendur óska eftir að skrá eftir að skráningarfresti lýkur er greitt tvöfalt skráningargjald. Skráning fer fram í gegnum Sportfeng. Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka/greinar ef ekki er næg þátttaka.

Boðið verður uppá eftirfarandi flokka og keppnisgreinar:
Barnaflokkur: Fjórgangur V2 – Fjórgangur V5 – Tölt T3 – Tölt T7
Unglingaflokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4
Ungmennaflokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2
2. flokkur: Fjórgangur V2 – Fjórgangur V5 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Tölt T7 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2
1. flokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2
Meistaraflokkur: Fjórgangur V1 – Fjórgangur V2 – Fimmgangur F1 – Fimmgangur F2 – Tölt T1 – Tölt T3 – Tölt T2 – Tölt T4 – Gæðingaskeið PP1 – 100 m skeið P2
Skráningagjöld eru eftirfarandi:
Barnaflokkur og unglingaflokkur: 4500 kr.
Ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur: 5500 kr.
Skeiðgreinar: 3000 kr.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link