„Reglusemi er lykill að árangri“

  • 25. apríl 2021
  • Fréttir

„Það er ólýsanleg tilfinning að ná að vinna Meistaradeildina. Það skemmtilegasta við þessa deild er það að maður er stöðugt að keppa við sjálfan sig og á leiðinni að stóra titlinum eru allskyns sigrar. Persónulegu sigrarnir eru oft ekki síður stórir og það að ná að hámarka árangur sinn með hvern hest, hverju sinni.“  Segir Árni Björn Pálsson sem í gærkvöldi tryggði sér sigur í einstaklingskeppni Meistaradeildarinnar með 64 heildarstig.

 

Reglusemi er lykillinn

Með þessum sigri bætti Árni Björn við fimmta sigrinum í einstaklingskeppninni en hann er sigursælasti knapi deildarinnar frá því keppni hófst fyrir 20 árum. „Neineinei alls ekki það munu koma aðrir á eftir mér sem taka við og bæta þessi met.“ Segir þessi mikli keppnismaður þegar hann er spurður að því hvort það sé ógerlegt fyrir aðra að bæta þetta met. En hver er galdurinn? „Það eru nokkrir lyklar að þessum árangri og ég myndi vilja segja við yngra fólkið, sem að er að fylgjast með og á sér draum um að ná árangri. Ástundun og metnaður, virðing fyrir hestinum og stöðug þekkingarleit, eru þeirra á meðal, en það er einn lykill sem skiptir mestu máli og það er reglusemi. Það er enginn íþróttamaður í fremstu röð í dag sem ekki hugsar um sjálfan sig og er út á lífinu fram eftir nóttu. Þú verður að hafa hreinan huga til þess að ná langt, tel ég.“

 

Verður einrænn á keppnisdegi

Á leið sinni að titlinum tók Árni Björn þátt í öllum greinum og var alltaf á meðal 10 efstu knapa og oftar en ekki í topp sætunum. Þau hross sem hann tefldi fram í vetur eru:
Svarta-Perla frá Álfhólum, Katla frá Hemlu II, Snilld frá Laugarnesi, Seiður frá Hlíðarbergi, Ögri frá Horni og Ljúfur frá Torfunesi. En hvað telur hann einkenna þessi hross? „Þetta eru allt frábærir gæðingar sem vilja leggja sig fram og hafa getu, þjálni og vilja til þess. Ég passa mig vel á því að hrossin mín séu heilbrigð, þeim líði vel og séu þannig í stakk búinn til að standa með mér, án þeirra væri ég bara kennitala.“ En hvað með hann sjálfan, hvernig hagar hann undirbúningi fyrir keppni og hvernig er keppnisdagurinn? „Þegar líður að keppni þarf maður að vera nákvæmur með hverja þjálfunarstund. Mér hefur þótt gott að æfa á mótsstað ekki seinna en viku fyrir mót. Á keppnisdegi verð ég svo hálf einrænn og einbeiti mér bara að sjálfum mér. Ég get ekkert gert í þessu, þetta er bara mín aðferð og virkar fyrir mig.“

 

Þegar maður teflir djarft er stutt í mistök

Á engan er hallað þegar því er haldið fram að Árni Björn og Jakob Svavar hafi verið í ákveðnum sérflokki í Meistaradeildinni í vetur og að einvígi þeirra um sigur í deildinni hafi verið spennandi. En hversu mikilvægt er að eiga slíkan keppinaut? „Það eru mikil verðmæti fyrir alla að hafa samkeppni og ég er þakklátur fyrir hana. Í Meistaradeildinni eru frábærir knapar sem draga fram það besta í manni og eru ástæða þess að maður leggur allt í sölurnar til þess að ná sigri. Ég hef alltaf trú á því að ég geti sigrað en er á sama tíma meðvitaður um að þegar maður teflir djarft geti maður gert mistök.“

 

Hvernig horfir sumarið við Árni Birni?

„Ég er mjög vel stemmdur fyrir komandi sumri og horfi fram á veginn. Þótt að heimsmeistaramóti hafi verið aflýst eru margir viðburðir fram undan hér á Íslandi sem ég er spenntur að taka þátt í.“

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link