Stjörnum prýddur ráslisti í Meistaradeild KS

  • 28. apríl 2021
  • Fréttir

Bjarni Jónasson og Harpa Sjöfn fór með sigur af hóli í fimmgangi árið 2020 Mynd: Bjarney Anna Þórsdóttir

Keppni í fimmgangi í Meistaradeild KS í hestaíþróttum fer fram í kvöld í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Það er óhætt að segja, þegar rýnt er í ráslista fyrir kvöldið, að hann sé stjörnum prýddur og mörg nafntoguð hross sé þar að finna.

TindastóllTV hefur sýnt frá keppninni undanfarinn ár við góðan orðstír og enginn breyting verður á því í kvöld. Hægt er að kaupa sér aðgang að útsendingunni með því að smella hér.

Á meðal hrossa eru:

Þráinn frá Flagbjarnarholti en knapi á honum, sem fyrr, er Þórarinn Eymundsson. Þráinn er hæst dæmdi stóðhestur fyrr og síðar með 8,95 í aðaleinkunn í kynbótadómi. Hann hefur hæst hlotið 7,73 í forkeppni í fimmgangi á opnu WR móti Sleipnis árið 2019.

Harpa-Sjöfn frá Hvolsvelli og Bjarni Jónasson unnu fimmgang í deildinni í fyrra með 7,43 í einkunn. Harpa-Sjöfn er með feykilega háan kynbótadóm með 8,86 í aðaleinkunn. Hún hefur einnig staðið sig frábærlega í keppni og fór hún m.a. í 7,88 í úrslitum á Hólamóti UMSS og Skagfirðings síðasta sumar.

Leynir frá Garðshorni á Þelamörk mætir í sína fyrstu keppni ásamt knapa sínum Agnari Þór Magnússyni. Leynir var hæst dæmdi stóðhestur landsins í 4.vetra flokki árið 2019 og lék sama leik í fyrra þegar hann var hæst dæmdi 5.vetra stóðhestur landsins með 8,77 í aðaleinkunn.

Trymbill frá Stóra-Ási er margreyndur keppnishestur og ekki er knapinn síður reynslumikill, Gísli Gíslason. Trymbill og Gísli urðu í 3.sæti í fyrra í þessari grein en ef þeir hitta á daginn sinn eru þeir til alls líklegir. Trymbill er með 9,01 fyrir hæfileika í kynbótadómi og þar af einkunnina 10,0 fyrir skeið.

Snillingur frá Íbishóli mætir ásamt ræktanda sínum og nafna, Magnúsi Braga Magnússyni, þeir hafa oft gert það gott í fimmgangi og voru til að mynda í úrslitum á Reykjavíkurmeistaramóti árið 2019 þar sem þeir hlutu 7,21 í einkunn.

Fjóla frá Eskiholti og Valdís Björk Guðmundsdóttir áttu gott ár í fyrra í fimmgangi og eru á topp 10 á stöðulista ársins með 7,17 í einkunn í forkeppni á Reykjavíkurmeistaramóti.

Kalsi frá Þúfum og Metta Mannseth eru þekkt keppnispar sem hafa gert það gott í fimmgangi en þau voru í A-úrslitum á Íslandsmóti 2019 og hlutu þá í einkunn 7,14.

Þetta er aðeins brot af þeim frábæru hestum sem eru á ráslistanum og spennan fyrir kvöldinu því mikil. Að sjálfsögðu er það þó þannig að enginn hefur unnið fyrirfram og afrek fyrri ára skipta litlu þegar í keppnina er komið.  Megi sá besti vinna!

Hér fyrir neðan má sjá brot af A-úrslitunum í þessari grein á síðasta keppnistímabili.

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link