Fleiri topphestar í stóðhestaveltu LH
Þröstur frá Kolsholti er á meðal þeirra hesta sem eru í stóðhestaveltunni. Mynd tekin á ræktunardegi Eiðfaxa síðastliðið vor af Gunnari Frey
Stóðhestavelta landsliðsins verður á sínum stað í tengslum við Allra sterkustu sem haldið verður í Samskipahöllinni í Spretti laugardagskvöldið 1. maí nk.
Um 100 folatollar verða í pottinum sem stóðhestaeigendur hafa gefið til styrktar landsliðinu. LH þakkar stuðninginn.
Miðsala hefst kl. 12.00 föstudaginn 30. apríl í vefverslun LH. Miðaverð er 45.000 kr., girðingagjald er ekki innifalið.
Við kynnum næstu 10 stóðhesta til leiks:
Atlas frá Hjallanesi
Atlas er hæst dæmda afkvæmi Spuna frá Vesturkoti og hefur hlotið í kynbótadómi 9,0 fyrir tölt, skeið, vilja og geðslag, fegurð í reið og hægt tölt og 9,5 fyrir stökk. Myndband af Atlasi
Heiður frá Eystra-Fróðholti
Heiður hefur hlotið í kynbótadómi 9,5 fyrir tölt og 9,0 fyrir brokk, vilja og geðslag, fegurð í reið, hægt tölt, samræmi, fótagerð og hófa. Myndband af Heiðri
Leynir frá Garðshorni
Leynir var hæst dæmdi 4ra vetra stóðhesturinn árið 2019 með 8,70 fyrir hæfileika og hæst dæmdi 5 vetra stóðhesturinn árið 2020 með 8,88 fyrir hæfileika. Hann hefur hlotið í hæfileikadómi 9,5 fyrir samstarfsvilja, 9,0 fyrir tölt, brokk, skeið og fegurð í reið. Myndband af Leyni
Safír frá Mosfellsbæ
Safír hefur hlotið í kynbótadómi 10,0 fyrir brokk, 9,5 fyrir fegurð í reið og fet og 9,0 fyrir tölt, stökk, vilja og geðslag, hægt stökk, höfuð, háls/herðar/bóga og samræmi. Myndband af Safír
Seðill frá Árbæ
Seðill hefur hlotið 8,61 fyrir sköpulag, þar af 9 fyrir háls/herðar/bóga og hófa og 8,35 fyrir hæfileika, 8,5 fyrir alla þætti hæfileikdóms nema skeið. Myndband af Seðli
Sigur frá Stóra-Vatnsskarði
Sigur hefur hlotið í kynbótadómi 9,5 fyrir tölt og 9,0 fyrir stökk, vilja og geðslag og fegurð í reið. Hann hefur einnig átt velgengni að fagna á keppnisvellinum. Myndband af Sigri
Þröstur frá Kolsholti
Þröstur er ungur og upprennandi stóðhestur. Hann hefur hlotið í kynbótadómi 9,5 fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag og 9,0 fyrir fegurð í reið. Myndband af Þresti
Útherji frá Blesastöðum
Útherji er hátt dæmdur klárhestur með 9,0 fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag í kynbótadómi. Myndband af Útherja
Tumi frá Jarðbrú
Tumi hefur hlotið í kynbótadómi fyrir sköpulag 8,56 og fyrir hæfileika 8,63, þar af 9 fyrir tölt, brokk, samstarfsvilja, fegurð í reið, háls/herðar/bóga og bak og lend. Myndband af Tuma
Hervar frá Innri-Skeljabrekku
Hervar hefur hlotið 8,74 fyrir sköpulag, þar af 9 fyrir bak og lend, samræmi, hófa og prúleika og 8,25 fyrir hæfileika, 8,5 fyrir tölt, skeið, samstarfsvilja og fegurð í reið. Myndband af Hervari
Sindri frá Hjarðartúni
Sindri hlaut 8,75 fyrir hæfileika fimm vetra gamall, þar af 9 fyrir tölt, hægt tölt, skeið, samstarfsvilja, og fegurð í reið. Myndband af Sindra
Prins frá Vöðlum
Prins fór í 8,45 í aðaleinkunn í sinni fyrstu sýningu sem er glæsilegt, þá aðeins 5 vetra. Hann náði 8,69 fyrir hæfileika, 9 fyrir tölt, 9 fyrir samstarfsvilja og 9 fyrir fet. Hér er á ferðinni hæfileikaríkur hestur sem er afkomandi hátt dæmdra gæðinga. Myndband af Prins
Korgur frá Garði
Korgur hefur hlotið í kynbótadómi m.a. 9,0 fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag og fegurð í reið og hefur átt góðu gengi að fagna í A-flokki. Myndband af Korgi
Skugga-Sveinn frá Þjóðólfshaga
Skugga-Sveinn er með jafnan og góðan kynbótadóm, 8,51 fyrir sköpulag og 8,55 fyrir byggingu, þar af 9 fyrir tölt, brokk, fegurð í reið, háls/herðar/bóga og hófa. Myndband af Skugga-Sveini
Dropi frá Kirkjubæ
Dropi er fjölhæfur gæðingur. Hann hefur hlotið í kynbótadómi 8,80 fyrir hæfileika þar af 9,5 fyrir samstarfsvilja, 9,0 fyrir tölt, brokk og skeið. Hann hefur einnig átt farsælan keppnisferil bæði í íþróttakeppni og gæðingakeppni. Myndband af Dropa
Knár frá Ytra-Vallholti
Knár er með 9,0 fyrir tölt, skeið, vilja og geðslag, fet og samræmi í kynbótadómi og hefur skilað hátt dæmdum afkvæmum. Myndband af Kná
Blæsir frá Hægindi
Blæsir hlaut mjög góðan dóm 4ra vetra gamall, m.a. 9 fyrir tölt, 8,5 fyrir brokk, stökk, samstarfsvilja og fegurð í reið. Myndband af Blæsi
Þytur frá Skáney
Þytur er með 9 fyrir tölt, stökk, bak og lend, samræmi, hófa og prúðleika í kynbótadómi. Hann er farsæll keppnishestur í fimmgangi og A-flokki. Myndband af Þyt
Þristur frá Tungu
Þristur hlaut fimm vetra gamall 8,69 fyrir hæfileika, þar af 9 fyrir tölt, skeið og samstarfsvilja og 8,5 fyrir brokk, stökk, fegurð í reið, fet og hægt tölt. Myndband af Þristi
Goði frá Bjarnarhöfn
Goði hefur hlotið í kynbótadómi 10,0 fyrir skeið, 9,5 fyrir vilja og geðslag og 9,0 fyrir tölt. Myndband af Goða
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH