Meistaradeild KS í hestaíþróttum Þórarinn og Þráinn sigurvegarar kvöldsins í Meistaradeild KS

  • 28. apríl 2021
  • Fréttir
Fimmgangskeppni í Meistaradeild KS í hestaíþróttum fór fram í kvöld í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Fyrir kvöldið ríkti mikil spenna á meðal hestamanna því hver gæðingurinn á fætur öðrum var skráður til leiks. Áhorfendur urðu ekki sviknir af því sem fram fór og mörg frábær tilþrif sáust. Blaðamaður Eiðfaxa fylgdist spenntur með keppninni í beinni útsendingu á TindastóllTV.
Að lokinni forkeppni var það sigurvegari síðasta árs í þessari grein Bjarni Jónasson og Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli sem að leiddu með einkunnina 7,17 í öðru sæti var Valdís Björk og Fjóla frá Eskiholti með 7,10 og í því þriðja Þórarinn Eymundsson og Þráinn frá Flagbjarnarholti með 7,03. Auk þess unnu sér þátttökurétt í A-úrslitum þær Randi Holaker á Þyt frá Skáney og Mette Mannseth með Kalsa frá Þúfum.
Í A-úrslitunum léku knapar svo við hvurn sinn fingur og keppnin var spennandi. Það fór svo að Þórarinn Eymundsson og Þráinn fóru með sigur úr býtum með glæsilega einkunn, 7,50. Jöfn í 2-3 sæti með 7,33 í einkunn voru þau Valdís Björk og Fjóla og Bjarni Jónasson og Harpa Sjöfn.
Í B-úrslitum voru einnig frábær pör en þar fór það svo að Agnar Þór og Leynir frá Garðshorni á Þelamörk og Gísli Gíslason á Trymbli frá Stóra-Ási urðu jafnir með 7,07 í einkunn en Agnar Þór vann á sætaröðun dómara.
Stigahæsta lið kvöldsins var lið Storm Rider.
Heildarniðurstöður kvöldsins eru hér fyrir neðan.
A úrslit
Sæti
Knapi
Hross
Einkunn
1
Þórarinn Eymundsson
Þráinn frá Flagbjarnarholti
7,50
2-3
Valdís Björk Guðmundsdóttir
Fjóla frá Eskiholti II
7,33
2-3
Bjarni Jónasson
Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli
7,33
4
Mette Mannseth
Kalsi frá Þúfum
7,12
5
Randi Holaker
Þytur frá Skáney
7,02
6-7
Agnar Þór Magnússon
Leynir frá Garðshorni á Þelamörk
0,00
B úrslit
Sæti
Knapi
Hross
Einkunn
6-7
Agnar Þór Magnússon
Leynir frá Garðshorni á Þelamörk
7,07
6-7
Gísli Gíslason
Trymbill frá Stóra-Ási
7,07
8
Finnbogi Bjarnason
Einir frá Enni
7,05
9
Vera Evi Schneiderchen
Ramóna frá Hólshúsum
7,00
10
Líney María Hjálmarsdóttir
Hátíð frá Reykjaflöt
6,71

 

Forkeppni
Sæti
Knapi
Hross
Einkunn
1
Bjarni Jónasson
Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli
7,17
2
Valdís Björk Guðmundsdóttir
Fjóla frá Eskiholti II
7,10
3
Þórarinn Eymundsson
Þráinn frá Flagbjarnarholti
7,03
4
Randi Holaker
Þytur frá Skáney
6,93
5
Mette Mannseth
Kalsi frá Þúfum
6,73
6
Agnar Þór Magnússon
Leynir frá Garðshorni á Þelamörk
6,70
7
Finnbogi Bjarnason
Einir frá Enni
6,67
8
Gísli Gíslason
Trymbill frá Stóra-Ási
6,50
9
Líney María Hjálmarsdóttir
Hátíð frá Reykjaflöt
6,37
10
Vera Evi Schneiderchen
Ramóna frá Hólshúsum
6,27
11
Magnús Bragi Magnússon
Snillingur frá Íbishóli
6,23
12
Sigrún Rós Helgadóttir
Rjóður frá Hofi á Höfðaströnd
6,20
13
Þorsteinn Björn Einarsson
Hjari frá Hofi á Höfðaströnd
6,13
14-16
Bjarki Fannar Stefánsson
Vissa frá Jarðbrú
6,10
14-16
Konráð Valur Sveinsson
Kastor frá Garðshorni á Þelamörk
6,10
14-16
Guðmar Freyr Magnússon
Rosi frá Berglandi I
6,10
17-19
Elvar Einarsson
Svíadrottning frá Syðra-Skörðugili
6,07
17-19
Freyja Amble Gísladóttir
Stimpill frá Þúfum
6,07
17-19
Ísólfur Líndal Þórisson
Ljúfur frá Lækjamóti II
6,07
20
Birna Tryggvadóttir
Draumur frá Breiðstöðum
6,03
21
Elvar Logi Friðriksson
Teningur frá Víðivöllum fremri
5,77
22
Barbara Wenzl
Mætta frá Bæ
5,47
23
Pétur Örn Sveinsson
Hlekkur frá Saurbæ
5,43
24
Daníel Gunnarsson
Valdís frá Ósabakka
5,37

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link