Spenna framundan í Meistaradeild KS
Liðsmenn Storm Rider ásamt Styrmi eiganda liðsins. F.v. Elvar Einarsson, Arndís Brynjólfsdóttir, Ásdís Ósk Elvarsdóttir, Styrmir Þorsteinsson, Bjarni Jónasson og Finnbogi Bjarnason. mynd: Birgit Zimmermann
Fimmgangskeppni í Meistaradeild KS fór fram í gærkvöldi. Þórarinn Eymundsson fór með sigur af hólmi á Þránni frá Flagbjarnarholti. Í liðakeppninni var það Lið Storm Rider sem var stigahæsta lið gærkvöldsins.
Heildarúrslit gærkvöldsins má lesa með því að smella hér.
Eitt keppniskvöld er eftir í Meistaradeild KS þar sem keppt verður í tölti og flugskeiði í gegnum höllina þann 7.maí og því nóg af stigum í pottinum bæði í einstaklings- og liðakeppninni en stöðuna má sjá hér fyrir neðan.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH