Fyrstu kynbótasýningu ársins lokið

Frauke sýndi 17 af þeim 18 hrossum sem mættu til fullnaðardóms. Hér situr hún Óðinn vom Habichtswald á HM2019. Mynd: Sofie Lahtinen Carlsson
Fyrsta kynbótasýning ársins, þar sem hross eru sýnd í reið, fór fram á Kronshof í Þýskalandi um helgina og hófst með forsýningum á föstudag og yfirliti á laugardag. Dómarar voru John Siiger Hansen og Silke Feuchthofen.
Alls voru 20 hross sýnd og þar af 18 í fullnaðardómi, 6 þeirra hlutu 1.verðlaun.
Öll hrossin eru þýsk fædd að undanskildu einu hrossi frá Íslandi, Djásn frá Vesturkoti. Frauke Schenzel sýndi öll þau hross sem mættu til fullnaðardóms að undanskildu einu hrossi sem Fiona Wormsdorff sýndi.
Hæst dæmda hross sýningarinnar er Njála vom Kronshof en hún er undan Hnokka frá Fellskoti og Glódísi vom Kronshof. Njála er sex vetra gömul og hlaut hún í aðaleinkunn 8,36.
Hér fyrr neðan má sjá öll dæmd hross á sýningunni