Vorkvöld í Reykjavík – Þekktir gæðingar mæta ásamt afkvæmum

  • 5. maí 2021
  • Fréttir

Gangster hefur verið að sanna sig sem ræktunarhestur

Vorkvöld í Reykjavík – Ræktunardagur Eiðfaxa fer fram í Víðidalnum laugardaginn næstkomandi 8.maí. Nú þegar hafa margir ræktendur og knapar sett sig í samband við okkur hjá Eiðfaxa og boðað komu sína með gæðinga.

Dagurinn verður sendur út í beinu streymi og áhorfendur geta mætt á svæðið með sóttvarnir í huga og þær takmarkanir sem í gildi eru.

Núna ætlum við að kynna þrjá stóðhesta sem koma fram ásamt afkvæmum sínum en þeir eru allir vel þekktir á meðal hestamanna og hafa unnið til afreka á ýmsum sviðum.

Klerk frá Bjarnanesi þekkja flestir hestamenn enda eftirtektarverður höfðingi. Hann er undan Glampa frá Vatnsleysu og Snældu frá Bjarnanesi. Klerkur er 18.vetra en mun mæta í fanta formi með knapa sínum Elísu Benediktu Andrésdóttur. Þeim munu fylgja nokkur af afkvæmum hans. Klerkur hefur hlotið 1.verðlaun í kynbótadómi og þá hefur hann skorað hátt bæði í íþrótta- og gæðingakeppni. Hann hefur meðal annars hlotið einkunnina 9,17 í Úrslitum í B-flokki.

Klerkur og Kári Steinsson á Stóðhestaveislu fyrir nokkrum árum

Ísak frá Þjórsárbakka er gríðar falllegur gripur með hvorki meira né minna en 8,84 fyrir sköpulag, 8,45 fyrir hæfileika og 8,61 í aðaleinkunn. Hann skartar einkunninni 9,5 fyrir háls, herðar og bóga, tölt og fegurð í reið. Ísak mætir í Víðdalinn ásamt knapa sínum Helgu Unu Björnsdóttur!

Ísak frá Þjórsárbakka og Helga Una Björnsdóttir mynd: Gunnar Freyr

Gangster frá Árgerði hefur nú þegar skilað 14.afkvæmum til kynbótadóms og stærstur hluti þeirra hlotið 1.verðlaun. Gangster er sjálfur landsþekktur gæðingur með 8,63 í aðaleinkunn í kynbótadómi. Hann hefur einnig gert það gott í keppni og verið í úrslitum á Landsmóti Hestamanna í A-flokki.

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link