Vorkvöld í Reykjavík – Enn bætist í veislukostinn
Sindri frá Hjarðartúni og Hans Þór Hilmarsson
Vorkvöld í Reykjavík – Ræktunardagur Eiðfaxa fer fram í Víðidalnum laugardaginn næstkomandi 8.maí og hefst klukkan 17:00.
Nú þegar hafa margir ræktendur og knapar sett sig í samband við okkur hjá Eiðfaxa og boðað komu sína með gæðinga.
Dagurinn verður sendur út í beinu streymi og áhorfendur geta mætt á svæðið með sóttvarnir í huga og þær takmarkanir sem í gildi eru, en aðkoma áhorfenda verður betur auglýst þegar Almannavarnir hafa gefið okkur skýr skilaboð um hvernig skuli haga sér.
Sindri frá Hjarðartúni hlaut á síðasta ári einkunnina 8,75 fyrir hæfileika, 8,25 fyrir sköpulag og 8,58 í aðaleinkunn einungis 5.vetra gamall. Hans Þór Hilmarsson mætir með hann í stuði í Víðidalinn.
Askur frá Enni hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir fas og fótaburð. Þórdís Erla mætir með hann á svæðið í blíðuna í Víðidanum. Askur er undan Loka frá Selfossi og Sendingu frá Enni og hefur því ekki langt að sækja hæfileikana. Askur hefur m.a. hlotið einkunnina 9,0 fyrir tölt og fegurð í reið í kynbótadómi.
Hylur frá Flagbjarnarholti er sá stóðhestur sem hæsta einkunn hefur hlotið fyrir sköpulag frá upphafi dóma, 9,09. Þá hefur hann hlotið 8,24 fyrir hæfileika og þar af 9,0 fyrir tölt, greitt stökk, samstarfsvilja og fegurð í reið. Guðmar Þór Pétursson mun sýna okkur Hyl á Vorkvöldi í Reykjavík.

Hylur frá Flagbjarnarholti
Þessir ásamt helling af öðrum frábærum hestum leika listir sýnar á laugardaginn í Víðidalnum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH