Bjarni Jónasson vann töltið og Jói Magg var fljótastur í skeiðinu

  • 8. maí 2021
  • Fréttir

Jóhann Magnússon og Fröken frá Bessastöðum

Úrslitum í tölti T1  og flugskeiði  er lokið í Meistaradeild KS í hestaíþróttum og þar með er keppnistímabili deildarinnar lokið. Efstur eftir forkeppni í tölti var Bjarni Jónasson og Katla frá Ytra-Vallholti en í öðru sæti var Mette Mannseth og List frá Þúfum. Röðun keppenda hélt sér í úrslitum og fór þannig að Bjarni Jónasson og Katla frá Ytra-Vallholti unnu keppnina með einkunnina 8,11. Mótið var sent út í beinni á Tindastól TV og liðaplatta kvöldsins í tölti hlaut lið Íbishóls en þau áttu tvo knapa í A-úrslitum og einn í B-úrslitum.

Bjarni Jónasson og Katla frá Ytra-Vallholti

 

Í flugskeiði voru margreyndir verðlaunahestar í braut og keppni því hörð –  Eftir fyrri sprett stóðu þeir Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu efstir á tímanum 4,75s en mjótt var á munum á milli þeirra og Sigursteins Sumarliðasonar og Krókusar frá Dalbæ sem fóru á tímanum 4,76 sekúndum. Það fór þó svo að Jóhann Birgir Magnússon sigraði skeiðið þegar Fröken frá Bessastöðum skeiðaði í gegnum höllina á tímahum 4,72s. Það var svo lið Leiknis sem tók liðaplattann í flugskeiðinu.

 

Í heildar liðakeppninni var það lið Íbishóls sem sigraði liðakeppnina í samanlögðum stigum með 292,2 stig. Liðsfélagar voru þau Magnús Bragi Magnússon (liðsstjóri), Guðmar Freyr Magnússon, Védís Huld Sigurðardóttir, Sigursteinn Sumarliðason og Freyja Amble Gísladóttir.

 

​Í einstaklingskeppninni varð stigahæst Metta Mannseth sem hélt forystu alla deildina með 124 stig. Hún er liðsstjóri í liðið Þúfna.

 

Hér fyrir neðan eru niðurstöður kvöldsins í tölti:

A-ÚRSLIT

  1. Bjarni Jónasson & Katla frá Ytra-Vallholti 8,11 / STORM RIDER
  2. Mette Mannseth & List frá Þúfum 7,94 / ÞÚFUR
  3. Þórarinn Eymundsson & Þrá frá Prestsbæ 7,78 / HRÍMNIR
  4. Magnús Bragi Magnússon & Óskadís frá Steinnesi 7,72 / ÍBISHÓLL
  5. Sigursteinn Sumarliðason & Skráma frá Skjálg 7,67 / ÍBISHÓLL

 

B-ÚRSLIT

  1. Þórdís Inga Pálsdóttir & Fjalar frá Vakurstöðum 7,50 / HRÍMNIR
  2. Guðmar Freyr Magnússon & Sigursteinn frá Íbishóli 7,39 / ÍBISHÓLL
  3. Þorsteinn Björn Einarsson & Fannar frá Hafsteinsstöðum 7,22 / HOFSTORFAN – 66°N
  4. Fanney Dögg Indriðadóttir & Trygglind frá Grafarkoti 7,17 / HRÍMNIR
  5. Artemisia Bertus & Filma frá Tunguhálsi II 7,06 / EQUINICS
  6. Vera Evi Schneiderchen & Ramóna frá Hólshúsum 6,94 / EQUINICS

 

  1. Sigrún Rós Helgadóttir & Týr frá Jarðbrú 6,73 / HOFSTORFAN – 66°N

13-14. Gísli Gíslason & Trymbill frá Stóra-Ási 6,70 / ÞÚFUR

13-14. Arndís Brynjólfsdóttir & Hraunar frá Vatnsleysu 6,70 / STORM RIDER

15-17. Barbara Wenzl & Kná frá Engihlíð 6,67 / ÞÚFUR

15-17. Randi Holaker & Þytur frá Skáney 6,67 / UPPSTEYPA

15- 17. Konráð Valur Sveinsson & Gammur frá Aðalbóli 6,67 / LEIKNIR

18- 20. Guðmar Þór Pétursson & Sókrates frá Skáney 6,57 / LEIKNIR

18-20. Ísólfur Líndal Þórisson &  Sæhvönn frá Dvergasteinum 6,57 / UPPSTEYPA

18-20. Elvar Einarsson & Muni frá Syðra-Skörðugili 6,57 / STORM RIDER

  1. Ylfa Guðrún Svafarsdóttir & Stórstjarna frá Akureyri 6,23 / HOFSTORFAN – 66°N
  2. Sunna Sigríður Guðmundsdóttir & Krafla frá Hamarsey 6,20 / EQUINICS

23-24. Jóhann Magnússon  & Bogi frá Bessastöðum 6,13 / LEIKNIR

23-24. Hans Kjerúlf & Elsa frá Jaðri 6,13 / UPPSTEYPA

 

Hér fyrir neðan eru niðurstöður kvöldsins í skeiði:

  1. Jóhann Magnússon og Fröken frá Bessastöðum 4,72 / LEIKNIR
  2. Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 4,75 / LEIKNIR
  3. Sigursteinn Sumarliðason og Krókus frá Dalbæ 4,76 / ÍBISHÓLL
  4. Þórarinn Eymundsson og Gullbrá frá Lóni 4,85 / HRÍMNIR
  5. Mette Mannseth og Vívaldi frá Torfunesi 4,87 / ÞÚFUR
  6. Daníel Gunnarsson og Eining frá Einhamri 2 4,91 / EQUINICS
  7. Hans Þór Hilmarsson og Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði 4,94 / STORM RIDER (leynigestur)
  8. Haukur Bjarnason og Þórfinnur frá Skáney 5,10 / UPPSTEYPA
  9. Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson og Seyður frá Gýgjarhóli 5,11 / HRÍMNIR (leynigestur)
  10. Bjarni Jónasson og Hrappur frá Sauðárkróki 5,12 / STORM RIDER
  11. Freyja Amble Gísladóttir og Dalvík frá Dalvík 5,23 / ÍBISHÓLL
  12. Svavar Örn Hreiðarsson og Hnoppa frá Árbakka 5,23 / UPPSTEYPA (leynigestur)
  13. Guðmar Freyr Magnússon og Brimar frá Varmadal 5,24 / ÍBISHÓLL

14-15. Bergrún Ingólfsdóttir og Viðar frá Hvammi 5,25 / ÞÚFUR

14-15. Guðmar Þór Pétursson og Hrafnkatla frá Ólafsbergi 5,25 / LEIKNIR

  1. Elvar Einarsson og Segull frá Halldórsstöðum 5,39 / STORM RIDER
  2. Þorsteinn Björn Einarsson og Fossbrekka frá Brekkum III 5,49 / HOFSTORFAN – 66°N
  3. – 19. Sigrún Rós Helgadóttir og Spyrna frá Þingeyrum 5,59 / HOFSTORFAN – 66°N

18.- 19. Líney María Hjálmarsdóttir og Brattur frá Tóftum 5,59 / HRÍMNIR

  1. Elvar Logi Friðriksson og Surtsey frá Fornusöndum 5,61 / UPPSTEYPA
  2. Valdís Björk Guðmundsdóttir og Gnýr frá Brekku 5,78 / EQUINICS
  3. Ylfa Guðrún Svafarsdóttir og Frekja frá Dýrfinnustöðum 5,80 / HOFSTORFAN – 66°N
  4. Sunna Sigríður Guðmundsdóttir og Ómur frá Litla Laxholti 5,90 / EQUINICS
  5. Gísli Gíslason og Kalsi frá Þúfum 5,96 / ÞÚFUR

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar