Undir hverja fóru heiðursverðlaunahryssurnar?

  • 22. nóvember 2012
  • Fréttir
Undir hverja fóru heiðursverðlaunahryssurnar?

Níu hryssur hlutu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á ráðstefnunni Hrossarækt 2012 um liðna helgi. Í 7. tbl. Eiðfaxa má nálgast ítarlega umfjöllun um þær. Hryssurnar eiga fjölbreyttan bakgrunn. Sumar þeirra skoruðu hátt í kynbótadómi og aðrar nutu velgengni í keppni, en þrátt fyrir að hafa ekki verið meðal þeirra bestu hafa nokkrar þeirra reynst frábærar kynbótahryssur. Er það ekki síst fyrir tilstilli vals eigenda þeirra á góðum stóðhestum með hryssunum sem svo vel hefur tekist í ræktun góðra hrossa undan þeim. 

 
Eiðfaxi fannst því ekki úr vegi að forvitnast hjá eigendum um hvaða stóðhestar urðu fyrir valinu fyrir hryssunar í vor. Skemmtilegt nokk: Engin þessarra níu hryssna er fengin við sama hest.
 
Glettubikarhafinn Þoka frá Hólum er fengin við stjörnu síðasta árs Spuna frá Vesturkoti. Gleði frá Prestsbakka á von á folaldi með hæst dæmda stóðhesti ársins Hrannari frá Flugumýri. Sóldögg frá Hvoli er hins vegar fengin við annan Flugumýrahest, Seið frá Flugumýri. Það kemur kannski ekki á óvart að Siggi Sig setti Pyttlu frá Flekkudal undir sigurvegara A-flokks gæðinga, Fróða frá Staðartungu. Ballerína frá Grafarkoti er hins vegar fengin við Topp frá Auðsholtshjáleigu og Ambátt frá Kanastöðum fór undir Kvist frá Skagaströnd en fyl er ekki staðfest. Ræktunarmaður ársins, Bergur Jónsson valdi stóðhest úr eigin ræktun, Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum, fyrir Framkvæmd frá Ketilsstöðum. Þá fór Kvika frá Akranesi fór undir Óskastein frá Íbishóli  og Storka frá Dalbæ er fengin við Arion frá Eystra-Fróðholti.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link