Sex hross hlutu 1.verðlaun á Margaretehof

  • 26. maí 2021
  • Fréttir

Sigurjón Örn Björnsson heldur í Berglín frá Bergi

Kynbótasýningu á Margaretehof í Svíþjóð lauk nú rétt í þessu með yfirlitssýningu. Alls voru 37 fullnaðardómar felldir og þess til viðbótar voru 5 hross dæmd í sköpulagi.Sex hross hlutu aðaleinkunn yfir 8,00 eða hærra og 1.verðlaun.

Hæst dæmdi stóðhestur sýningarinnar er sjö vetra gamall og heitir Barón fra Limfjorden undan Prins fra Knutshyttan og Rósu fra Limfjorden en sú er undan Álfasteini frá Selfossi og Stoð frá Kjarri. Hlaut Barón 8,40 fyrir sköpulag, 8,28 fyrir hæfileika og 8,32 í aðaleinkunn. Eigandi hans er Michael Høj Lomborg en sýnandi var Agnar Snorri Stefánsson.

Agnar Snorri situr á Baróni hæst dæmda stóðhesti sýningarinnar

Hæst dæmda hryssa sýningarinnar var Berglín frá Bergi sem er 8.vetra gömul hryssa ræktuð af Önnu Dóru Markúsdóttur. Hlaut hún 8,21 fyrir sköpulag, 7,93 fyrir hæfileika og 8,03 í aðaleinkunn. Hún er undan Arion frá Eystra-Fróðholti og Brá frá Bergi. Sýnandi Berglínar var Sigurjón Örn Björnsson.

Önnur hross sem hlutu 1.verðlaun voru Frami fra Ulbæk sem er 6.vetra gamall og hlaut hann 8,15 í aðaleinkunn, Undri frá Sólvangi sem er 8.vetra gamall og hlaut 8,04 í aðaleinkunn, Dama frá Ulbæk sem er 5.vetra og hlaut 8,02 í aðaleinkunn og Kjarkur frá Lækjamóti sem hlaut 8,0 í aðaleinkunn.

 

Öll sýnd hross á Margreterhof

Hross á þessu móti Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn Sýnandi
DK2014100357 Barón fra Limfjorden 8.4 8.28 8.32 Agnar Snorri Stefánsson
DK2015100342 Frami fra Ulbæk 8.14 8.15 8.15 Agnar Snorri Stefánsson
IS2013182282 Undri frá Sólvangi 8.19 7.95 8.04 Agnar Snorri Stefansson
IS2013237487 Berglín frá Bergi 8.21 7.93 8.03 Sigurjón Örn Björnsson
DK2016200134 Dama fra Ulbæk 8.14 7.95 8.02 Agnar Snorri Stefánsson
IS2014155116 Kjarkur frá Lækjamóti II 8.3 7.83 8 James Bóas Faulkner
SE2016170702 Skúr från Ornö 8.3 7.75 7.95 Eyvindur Mandal-Hreggvidson
SE2016270634 Milla från Smedjan 7.92 7.92 7.92 Birkebro, Josefin
SE2016170690 Heimir från Solhäll 8.41 7.62 7.89 Eyvindur Mandal-Hreggvidson
SE2015270365 Ársól från Stensäter 7.71 7.98 7.89 Mette Lund-Lindberg
SE2015270096 Steinunn från Skáneyland 8.06 7.77 7.87 Mette Lund-Lindberg
IS2015155118 Leikur frá Lækjamóti II 8.26 7.62 7.84 James Bóas Faulkner
SE2015170075 Ramses från Snäcksjön 8.41 7.5 7.82 Eyvindur Mandal-Hreggvidson
DK2015100163 Baldur fra Vejlegaard 8.14 7.62 7.81 Birkebro, Josefin
DK2015200552 Smilla fra Vinkærgård 8.06 7.66 7.8 Logan Hegardt, Caspar
IS2014237483 Þrymgjöll frá Bergi 7.99 7.62 7.75 Sigurjón Örn Björnsson
DK2013100771 Helios fra Bøgegården 7.97 7.61 7.74 Agnar Snorri Stefansson
SE2016270647 Krafla från Skáneyland 7.99 7.59 7.73 Agnar Snorri Stefánsson
SE2012204634 Svala från Råknahult 8.04 7.55 7.73 Mette Lund-Lindberg
IS2014286332 Glitra frá Hellu 7.64 7.72 7.69 Sebastian Benje
SE2012204264 Hild från Galgbacken 8.16 7.42 7.68 Katie Brumpton
SE2016170516 Herjann från Stenholmen 8.17 7.33 7.63 Eyvindur Mandal-Hreggvidson
SE2015106890 Þór från Hagstad 7.83 7.5 7.62 James Bóas Faulkner
SE2015220999 Von från Väbylund 8.01 7.3 7.55 Karin Gunnarsson
DK2015200141 Sending fra Frisendal 7.91 7.33 7.54 Helen Aðalsteindottir Kroghen
IS2013284871 Urður frá Hjarðartúni 7.84 7.37 7.53 Karin Gunnarsson
SE2015206903 Ljúfa från Ekeholm 7.86 7.33 7.52 Sofia Österholm
SE2016170515 Haraldur från Stenholmen 8.14 7.05 7.44 Eyvindur Mandal-Hreggvidson
DK2015200368 Eydís fra Frisendal 7.79 7.24 7.43 Helen Aðalsteindottir Kroghen
IS2012258103 Blæja frá Berglandi I 7.69 7.29 7.43 James Bóas Faulkner
IS2010265429 Lísa frá Ytri-Brennihóli 7.58 7.35 7.43 Mette Lund-Lindberg
DK2011200955 Alfa fra Løvdal 7.67 7.29 7.43 James Bóas Faulkner
SE2015270303 Hjördís från Raudhetta gård 7.91 7.02 7.33 Louise Löfgren
SE2012205043 Glitra från Stävie 8.09 6.82 7.26 Juliane Klink
SE2014206471 Ösp från Blåsbotorpet 7.69 7 7.24 Ólafur Ásgeirsson
NL2014200138 Svás frá Skoti 7.77 6.95 7.24 Karin Gunnarsson
NO2014209265 Kvika fra Ågreneset 7.67 6.93 7.19 Daniel Sundin
SE2017116903 Atlas från Tuddabo 7.96 Eggert Helgason
SE2017222897 Birta från Svala Gård 7.99 Sebastian Benje
SE2013205233 Elding från Stenholmen 7.89 Ólafur Ásgeirsson
SE2016171026 Lúkas från Himnaríkis 7.6 Hrafnkell Karlsson
SE2013205841 Spíra från Lärkebo 7.69 Eggert Helgason

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar