Góðir tímar náðust á fyrstu Skeiðleikum

Efstu þrír í 250 metra skeiði. F.v. Daníel Gunnarsson, Konráð Valur Sveinsson og Sigursteinn Sumarliðason. Hjá þeim stendur Ragna Gunnarsdóttir annar af eigendum Baldvins og Þorvaldar
Fyrstu Skeiðleikar Baldvins og Þorvaldar og Skeiðfélagsins fóru fram í kvöld á Brávöllum á Selfossi og marka þeir upphaf alþjóðlegs íþróttamóts sem framundan er þar næstu daga.
Vindur stóð af suðri og blés heldur köldu lofti og þurru, enda skuggsýnt á suðurlandi í dag vegna sandfoks. Þrátt fyrir það náðust góðir tímar í öllum skeiðgreinum. Eftirtektarvert var í kvöld hversu margir ungir og óreyndir hestar tóku þátt í 100 metra skeiði sem er frábært og til marks um þá grósku sem er í skeiðkeppni.
Í 250 metra skeiði var það Krókus frá Dalbæ setinn af Sigursteini Sumarliðasyni sem bestum tíma náði, 21,70 sekúndum, skammt undan var Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II og Konráð Valur Sveinsson á tímanum 22,00 sekúndum. Það er öllum ljóst að þessir kappar munu berjast um sigur í þessari hlaupagrein á komandi sumri. Heimsmetið í greininni er 21,15 og ef þeir hitta á réttar aðstæður er ekki ólíklegt að það falli í náinni framtíð.
Eyrún Ýr Pálsdóttir og Sigurrós frá Gauksmýri áttu besta tíman í 150 metra skeiði og það þrælgóðan, fóru brautina á 14,64 sekúndum. Glæsilegur árangur hjá Eyrúni og Sigurrósu sem einnig urðu í 2.sæti í 100 metra skeiði. Önnur í þessari grein varð Þórdís Erla Gunnarsdóttir á Óskadís frá Fitjum á 14,67.

Eyrún Ýr og Þórdís Erla urðu í fyrsta og öðru sæti í 150 metra skeiði.
Viðar Ingólfsson vann svo keppni í 100 metra skeiði á Ópal frá Miðási á tímanum 7,71 sekúndu. Eins og áður segir varð Eyrún Önnu og Ingibergur Árnason varð þriðji sekúndubroti hægar en Eyrún en hann og Sólveig frá Kirkjubæ fóru á 7,92.

Verðlaunahafar í 100 metra skeiði
Skeið 250m P1 | |||
Opinn flokkur – 1. flokkur | |||
Sæti | Knapi | Hross | Tími |
1 | Sigursteinn Sumarliðason | Krókus frá Dalbæ | 21,70 |
2 | Konráð Valur Sveinsson | Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II | 22,00 |
3 | Daníel Gunnarsson | Eining frá Einhamri 2 | 22,67 |
4 | Finnur Jóhannesson | Tinna Svört frá Glæsibæ | 23,03 |
5 | Ingibergur Árnason | Sólveig frá Kirkjubæ | 23,47 |
6 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Rangá frá Torfunesi | 23,83 |
7 | Bjarni Bjarnason | Glotti frá Þóroddsstöðum | 24,11 |
8 | Bjarni Bjarnason | Jarl frá Þóroddsstöðum | 24,18 |
9 | Erlendur Ari Óskarsson | Dama frá Hekluflötum | 24,50 |
10 | Svavar Örn Hreiðarsson | Surtsey frá Fornusöndum | 24,53 |
11 | Ævar Örn Guðjónsson | Ás frá Eystri-Hól | 26,33 |
12-13 | Árni Björn Pálsson | Ögri frá Horni I | 0,00 |
12-13 | Benjamín Sandur Ingólfsson | Fáfnir frá Efri-Rauðalæk | 0,00 |
Skeið 150m P3 | |||
Opinn flokkur – 1. flokkur | |||
Sæti | Knapi | Hross | Tími |
1 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | Sigurrós frá Gauksmýri | 14,64 |
2 | Þórdís Erla Gunnarsdóttir | Óskastjarna frá Fitjum | 14,67 |
3 | Árni Björn Pálsson | Seiður frá Hlíðarbergi | 14,83 |
4 | Hans Þór Hilmarsson | Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði | 14,84 |
5 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Sjóður frá Þóreyjarnúpi | 15,14 |
6 | Ingibergur Árnason | Flótti frá Meiri-Tungu 1 | 15,31 |
7 | Hafþór Hreiðar Birgisson | Spori frá Ytra-Dalsgerði | 15,43 |
8 | Bjarni Bjarnason | Þröm frá Þóroddsstöðum | 15,44 |
9 | Ævar Örn Guðjónsson | Sneis frá Ytra-Dalsgerði | 15,89 |
10 | Ólafur Örn Þórðarson | Lækur frá Skák | 16,05 |
11 | Sigursteinn Sumarliðason | Sóta frá Steinnesi | 16,33 |
12 | Brynjar Nói Sighvatsson | Nn frá Oddhóli | 16,67 |
13 | Árni Sigfús Birgisson | Draumur frá Skíðbakka I | 17,34 |
14 | Klara Sveinbjörnsdóttir | Glettir frá Þorkelshóli 2 | 17,54 |
15 | Ingi Björn Leifsson | Gná frá Selfossi | 17,77 |
16 | Þorvaldur Logi Einarsson | Skíma frá Syðra-Langholti 4 | 19,58 |
17-24 | Guðjón Sigurðsson | Stoð frá Hrafnagili | 0,00 |
17-24 | Sigurður Vignir Matthíasson | Léttir frá Eiríksstöðum | 0,00 |
17-24 | Jón Bjarni Smárason | Blævar frá Rauðalæk | 0,00 |
17-24 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Blikka frá Þóroddsstöðum | 0,00 |
17-24 | Sigurður Sigurðarson | Drómi frá Þjóðólfshaga 1 | 0,00 |
17-24 | Ívar Örn Guðjónsson | Funi frá Hofi | 0,00 |
17-24 | Bjarni Bjarnason | Hljómur frá Þóroddsstöðum | 0,00 |
17-24 | Davíð Jónsson | Glóra frá Skógskoti | 0,00 |
Flugskeið 100m P2 | |||
Opinn flokkur – 1. flokkur | |||
Sæti | Knapi | Hross | Tími |
1 | Viðar Ingólfsson | Ópall frá Miðási | 7,73 |
2 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | Sigurrós frá Gauksmýri | 7,91 |
3 | Ingibergur Árnason | Sólveig frá Kirkjubæ | 7,92 |
4 | Konráð Valur Sveinsson | Stolt frá Laugavöllum | 7,96 |
5 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Rangá frá Torfunesi | 7,98 |
6 | Hrefna María Ómarsdóttir | Alda frá Borgarnesi | 8,23 |
7 | Svavar Örn Hreiðarsson | Sproti frá Sauðholti 2 | 8,27 |
8 | Guðbjörn Tryggvason | Kjarkur frá Feti | 8,30 |
9 | Sólon Morthens | Þingey frá Torfunesi | 8,33 |
10 | Védís Huld Sigurðardóttir | Hrafnhetta frá Hvannstóði | 8,34 |
11 | Rósa Kristín Jóhannesdóttir | Gnýr frá Brekku | 8,42 |
12 | Embla Þórey Elvarsdóttir | Tinni frá Laxdalshofi | 8,53 |
13 | Kjartan Ólafsson | Stoð frá Vatnsleysu | 8,67 |
14 | Vilborg Smáradóttir | Klókur frá Dallandi | 8,67 |
15 | Ylfa Guðrún Svafarsdóttir | Frekja frá Dýrfinnustöðum | 8,71 |
16 | Kristófer Darri Sigurðsson | Gnúpur frá Dallandi | 8,72 |
17 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | Ögri frá Bergi | 8,77 |
18 | Svavar Örn Hreiðarsson | Storð frá Torfunesi | 8,81 |
19 | Þorvaldur Logi Einarsson | Skíma frá Syðra-Langholti 4 | 8,92 |
20 | Ísak Andri Ármannsson | Eldur frá Hvítanesi | 9,04 |
21 | Bjarni Birgisson | Sunna frá Blesastöðum 2A | 9,08 |
22 | Þórey Þula Helgadóttir | Þótti frá Hvammi I | 9,12 |
23 | Guðjón Sigurðsson | Úlfur frá Hestasýn | 9,42 |
24 | Hrund Ásbjörnsdóttir | Heiða frá Austurkoti | 9,45 |
25 | Guðjón Sigurðsson | Snælda frá Kolsholti 3 | 9,63 |
26 | Óskar Örn Hróbjartsson | Iða frá Svörtuloftum II | 9,66 |
27 | Árni Sigfús Birgisson | Draumur frá Skíðbakka I | 9,87 |
28-32 | Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir | Snædís frá Kolsholti 3 | 0,00 |
28-32 | Hans Þór Hilmarsson | Gloría frá Grænumýri | 0,00 |
28-32 | Sonja Noack | Tvistur frá Skarði | 0,00 |
28-32 | Sæmundur Þorbjörn Sæmundsson | Seyður frá Gýgjarhóli | 0,00 |
28-32 | Hlynur Pálsson | Sefja frá Kambi | 0,00 |