Björguðu hrossum sem voru strand í Þjórsá
Björgunaraðgerðir í Þjórsá Ljósmynd/Landsbjörg
Björgunarsveitir í uppsveitum Árnessýslu voru kallaðar út í gærkvöldi vegna hóps af hrossum sem voru strandaglópar á sandeyri í miðri Þjórsá.
Í fréttatilkynningu frá Landsbjörg segir að svo hafi virst sem hrossin hafi farið út á eyrina á þurru en svo hafi aukist vatnið í ánni og hrossin, sem voru tæplega 20 talsins, hafi veigrað sér við að fara yfir ána.
Björgunarsveitafólk óð yfir ána til hrossanna og kom taumi á nokkur þeirra og teymdi yfir ána, restin af þeim fylgdi á eftir og þar með var málið leyst á farsælan hátt.

Ljósmynd:Landsbjörg
Hörður Hákonarson látinn
Gljátoppur í hörkudóm í Svíþjóð
Upplyfting í 10 fyrir hægt tölt
Niðurstöður frá Metamóti Spretts