Opið gæðingamót Sleipnis
Frami frá Ketilsstöðum var fyrsti hesturinn sem hlaut Klárhestaskjöld Sleipnis sem er hannaður af listamanninum Siggu á Grund
Opið gæðingamót Sleipnis fer fram á Brávöllum á Selfossi helgina 4.-6. Júní. Keppt verður í hefðbundnum greinum gæðingakeppninnar. Skráning er hafin og fer fram á Sportfeng.
Góð þátttaka hefur oft verið í gæðingakeppni Sleipnis og er það mikill heiður fyrir eigendur hrossa og knapa að standa efst í sínum flokki. Gæðingamótsnefnd Sleipnis vonar að þátttaka verði góð og hvetur félagsmenn til þátttöku.
Skráning er opin en henni lýkur þriðjudagskvöldið 1.júní.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV