Rúmlega 40 hross hlutu 1.verðlaun á Hellu
Viðar Ingólfsson heldur í Huginn frá Bergi hæst dæmda stóðhest sýningarinnar
Fyrstu sýningarvikunni á Gaddstaðaflötum lauk í gær á yfirlitssýningu. Alls voru sýnd 92 hross í fullnaðardómi, flest þeirra sýndi Árni Björn Pálsson, alls 29 talsins. Dómarar voru þau Elsa Albertsdóttir, Heiðrún Sigurðardóttir og Þorvaldur Kristjánsson
Hæst dæmda hross sýningarinnar var hryssan Frigg frá Hólshúsum, en fjallað var um hana í frétt á vef Eiðfaxa á fimmtudaginn sem lesa má með því að smella hér.
Hæst dæmdi stóðhestur sýningarinnar var Huginn frá Bergi sem er 8.vetra gamall undan Króki frá Ytra-Dalsgerði og Hildu frá Bjarnarhöfn. Ræktandi hans og eigandi er Anna Dóra Markúsdóttir en sýnandi var Viðar Ingólfsson. Huginn hlaut 8,45 fyrir sköpulag, 8,60 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,55. Jafnvígur alhliða gæðingur.
Af öðrum stóðhestum sem komu fram er vert að minnast á Magna frá Stuðlum sem hlaut 8,74 fyrir sköpulag, 8,40 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,52 einungis 5.vetra gamall. Árni Björn Pálsson sýndi Magna en ræktendur eru Páll Stefánsson og Edda Björk Ólafsdóttir en eigendur eru auk Páls, Hrafnkell Áki Pálsson og Ólafur Tryggvi Pálsson. Magni er undan Konsert frá Hofi og Stöku frá Stuðlum. Magni er hæst dæmdi 5.vetra stóðhestur landsins árið 2021.
Hæst dæmda fimm vetra hryssa ársins hingað til kom einnig fram á Gaddstaðaflötum og er hún, líkt og Magni, frá Stuðlum. Sú heitir Dagný og hlaut hún 8,56 fyrir sköpulag, 8.38 fyrir hæfileika og 8,44 í aðaleinkunn. Sýnandi var Árni Björn Pálsson en ræktendur og eigendur eru Páll og Edda Björk. Faðir hennar er Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum og móðir er Hnota frá Stuðlum.
Hávör frá Ragnheiðarstöðum hlaut háan dóm en hann hljóðar upp á 8,20 fyrir sköpulag, 8,72 fyrir hæfileika og 8,54 í aðaleinkunn. Hávör er sjö vetra gömul undan Hrannari frá Flugumýri II og Hátíð frá Úlfsstöðum. Ræktandi er Helgi Jón Harðarson en eigendur eru HJH Eignarhaldsfélag ehf og Fanndís Helgadóttir. Sýnandi hennar var Jakob Svavar Sigurðsson
Auk þessara hrossa kom fram fjöldinn allur af eftirtektarverðum hrossum og hlaut Sólfaxi frá Herríðarhóli 9,5 fyrir hægt tölt, tölt og samstarfsvilja. Nökkvi frá Hrísakoti hlaut 9,5 fyrir skeið og Eljar frá Gljúfurárholti 9,5 fyrir greitt stökk.
Kynbótasýning fór einnig fram á Hólum í Hjaltadal og mun frétt um þá sýningu einnig birtast hér á vef Eiðfaxa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH