Kynbótahross láta að sér kveða á suður- og norðurlandi
Valur Ásmundsson einn af ræktendum Friggjar heldur í hana að loknum dómi á Hellu í kvöld. mynd/Aðsend
Kynbótasýningar eru nú hafnar hér á landi, byrjað var að dæma á mánudagsmorgun á Gaddstaðaflötum við Hellu og í dag á Hólum í Hjaltadal.
Alls hafa 97 verið sýnd í fullnaðardómi hingað til, 72 á Gaddstaðaflötum og 25 á Hólum. Dæmt verður á báðum stöðum á morgun og yfirlit á föstudag.
Hæst dæmda hrossið hér á landi hingað til er Frigg frá Hólshúsum, hún er sex vetra gömul undan Kambi frá Akureyri og Finndísi Fjólu frá Meiri-Tungu 3. Ræktendur hennar eru Valur Ásmundsson, Dagný Linda Kristjánsdóttir og Kolbrún Ingólfsdóttir. Hún hlaut 8,34 fyrir sköpulag, 8,89 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,70. Hún hlaut 9,0 fyrir tölt, brokk,skeið, samstarfsvilja, fegurð í reið, fet, hægt tölt og hófa. Sýnandi hennar er Árni Björn Pálsson en þjálfari Kári Steinsson.
Á Hólum kom fram áhugaverður 4.vetra gamall stóðhestur sem heitir Drangur frá Steinnesi undan Draupni frá Stuðlum og Ólgu frá Steinnesi. Sýnandi hans er Tryggvi Björnsson en ræktandi og eigandi er Magnús Jósefsson. Drangur hlaut 8,41 fyrir sköpulag, 8,28 fyrir hæfileika og 8,33 í aðaleinkunn. Hann hlaut m.a einkunnina 9,0 fyrir tölt og hófa.
Sólfaxi frá Herríðarhóli hlaut nú í kvöld þrjár „níu fimmur“ fyrir hægt tölt, tölt og samstarfsvilja aðeins fimm vetra gamall. Af öðrum hrossum sem hlotið hafa einkunnina 9,5 fyrir eiginleika í hæfileikadómi það sem af er ári að þá hlaut Eljar frá Gljúfurárholti 9,5 fyrir greitt stökk og Álfamær frá Prestsbæ 9,5 fyrir skeið.
Tvö hross hafa hlotið 10,0 fyrir eiginleika í sköpulagi en það eru Valdís frá Auðsholtshjáleigu sem hlaut tíu fyrir höfuð og Blesi frá Heysholti sem hlaut 10,0 fyrir prúðleika.
Beinar útsendingar frá kynbótasýningum á AlendisTV vekja lukku og ber að hrósa þeim fyrir framtakið en fólk um allan heim fylgist nú með því sem íslenskir ræktendur hafa fram að færa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH