Gæðingamót og úrtaka Dreyra – úrslit

  • 6. júní 2021
  • Fréttir

Þorsti frá Ytri-Bægisá er efsti hestur í B-flokki hjá Dreyra

Hestamannafélagið Dreyri hélt gæðingamót sitt í gær sem jafnframt var úrtaka fyrir Fjórðungsmótið í Borgarnesi sem fram fer 7.-11.júlí.

í A-flokki gæðinga er það Skutla frá Akranesi sem hreppti sigur með knapa sínum Belindu Ottósdóttur. Sigurður Sigurðarson hefur titil að verja í B-flokki á Fjórðungsmóti Vesturlands því hann sýndi Örnu frá Skipaskaga á því mótið árið 2017 þar sem hún stóð efst. Hann mætir með Þorsta frá Ytri-Bægisá til leiks en hann stóð efstur í B-flokki gæðinga hjá Dreyra með 8,74 í úrslitum.

Þeir Jörundur Óli og Anton Már Greve unnu sér þátttökurétt í barnaflokki en Jörundur hafði betur í úrslitum á Perlu frá Gili. Í B-flokki ungmenna var það svo hún Hjördís Helma Jörgensdóttir sem vann sér þátttökurétt á Hrafni frá Þúfu í Kjós en þau hlutu 8,25 í einkunn.

Þá var einnig keppt í gæðingatölti fullorðinna og þar vann Eldur frá Borgarnesi setinn af Ólafi Guðmundssyni með 8,23 í einkunn.

 

A flokkur
Gæðingaflokkur 1
Forkeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Skutla frá Akranesi Belinda Ottósdóttir 8,32
2 Arnar frá Skipanesi Guðbjartur Þór Stefánsson 8,18
3 Kveikja frá Skipaskaga Leifur George Gunnarssonn 8,16
4 Gleipnir frá Skipaskaga Sigurður Sigurðarson 8,00
5 Niður frá Miðsitju Ólafur Guðmundsson 7,96
A úrslit
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Skutla frá Akranesi Belinda Ottósdóttir 8,51
2 Kveikja frá Skipaskaga Leifur George Gunnarssonn 8,35
3 Arnar frá Skipanesi Guðbjartur Þór Stefánsson 8,27
4 Niður frá Miðsitju Ólafur Guðmundsson 7,95
5 Gleipnir frá Skipaskaga Sigurður Sigurðarson

 

B flokkur
Gæðingaflokkur 1
Forkeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Þorsti frá Ytri-Bægisá I Sigurður Sigurðarson 8,56
2 Móða frá Leirubakka Benedikt Þór Kristjánsson 8,34
3 Gná frá Skipaskaga Leifur George Gunnarssonn 8,32
4-5 Eydís frá Skipanesi Guðbjartur Þór Stefánsson 8,13
4-5 Draumur frá Akranesi Þorgeir Ólafsson 8,13
6 Finnur frá Feti Benedikt Þór Kristjánsson 8,11
7 Hlökk frá Kirkjufelli Leifur George Gunnarssonn 8,07
8 Eldur frá Borgarnesi Ólafur Guðmundsson 7,92
A úrslit
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Þorsti frá Ytri-Bægisá I Sigurður Sigurðarson 8,74
2 Gná frá Skipaskaga Leifur George Gunnarssonn 8,50
3 Móða frá Leirubakka Benedikt Þór Kristjánsson 8,40
4 Draumur frá Akranesi Þorgeir Ólafsson 8,33
5 Eydís frá Skipanesi Guðbjartur Þór Stefánsson 8,28
6 Finnur frá Feti Benedikt Þór Kristjánsson 8,11

 

Barnaflokkur
Gæðingaflokkur 1
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Jörundur Óli Arnarsson Perla frá Gili 7,80
2 Anton Már Greve Magnússon Hnokki frá Eyri 7,23
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Jörundur Óli Arnarsson Perla frá Gili 7,88
2 Anton Már Greve Magnússon Hnokki frá Eyri 7,62

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link