Punktamót í Mosfellsbæ á fimmtudag
Það dreymir alla um að verða Íslandsmeistari í hestaíþróttum
Haldið verður tölumót í Mosfellsbæ fimmtudaginn 24. júní, eða deginum áður en stöðulistinn fyrir Íslandsmót er tekinn út. Þetta er því síðasti séns til þess að næla sér í forkeppnistölu inn á Íslandsmót!
Boðið verður upp á:
– T1
– T2
– F1
– V1
– Gæðingaskeið PP1
Ekki verða haldin úrslit í neinum greinum og er hámarks skráning í hvern flokk 20. Skráning fer fram í gegnum sportfeng og er skráningargjald í töltgreinarnar 3500kr og í fjórgang, fimmgang og gæðingaskeið 4000kr.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH