Íslandsmót í hestaíþróttum- Hver sigrar fimmgang?
Olil Amble varð Íslandsmeistari í fimmgangi árið 2019 á Álfarni frá Syðri-Gegnishólum. Hér eru þau á HM í Berlín 2019. Ljósmynd/Sofie Lahtinen Carlsson
Íslandsmótið í hestaíþróttum hefst á Hólum í Hjaltadal miðvikudaginn 30.júní. Af því tilefni fékk Eiðfaxi þrjá hestamenn auk ritstjóra til þess að spá í spilin með sér um hvaða knapi og hestur færu með sigur af hólmi í hverri grein og hverjir myndu berjast um titlana.
Frábærir knapar og hestar eru skráðir til leiks í fimmgangi og er spennandi að sjá hver fer stendur uppi sem Íslandsmeistari í þeirri grein. Efsti hestur á stöðulista bæði í fullorðinsflokki og ungmennaflokki eru ekki á meðal keppenda.
Stöðulisti í F1 – fimmgangur
| 1 | Þórarinn Eymundsson | Þráinn frá Flagbjarnarholti | 7.60 |
| 2 | Snorri Dal | Engill frá Ytri-Bægisá I | 7.57 |
| 3-4 | Bjarni Jónasson | Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli | 7.47 |
| 3-4 | Árni Björn Pálsson | Katla frá Hemlu II | 7,47 |
| 5-6 | Arnar Bjarki Sigurðarson | Álfaskeggur frá Kjarnholtum I | 7,43 |
| 5-6 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | Hrannar frá Flugumýri II | 7,43 |
Stöðulisti F1 ungmennaflokkur – fimmgangur
| 1 | Guðmar Freyr Magnússon | Snillingur frá Íbishóli | 6,90 |
| 2-3 | Thelma Dögg Tómasdóttir | Bósi frá Húsavík | 6,87 |
| 2-3 | Kristófer Darri Sigurðsson | Ás frá Kirkjubæ | 6,87 |
| 4-5 | Guðmar Freyr Magnússon | Rosi frá Berglandi | 6,73 |
| 4-5 | Katla Sif Snorradóttir | Gimsteinn frá Víðinesi 1 | 6,73 |
Eyvindur Hrannar Gunnarsson
Meistaraflokkur: Fimmgangurinn verður frábær í ár, ég tel að nafni minn frá Flugumýri og knapi hans Eyrún Ýr fari með gullið heim. Þau hafa unnið stóran titil á þessu svæði áður og Hrannar er að mínu mati einn besti alhliðagæðingur frá upphafi. Baráttan um 2.sætið verður hörð og þar tel ég að Árni Björn og Katla frá Hemlu og Bjarni Jónasson og Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli munu berjast um það. Ég er spenntur að sjá Kolbak frá Litla-Garði og Ólaf Andra því þar er á ferðinni eitt mesta fimmgangsefni sem ég hef séð í töluverðan tíma, ég tippa á að þeir verði í A-úrslitum og geti vel blandað sér í baráttuna um 3.sætið.
Ungmennaflokkur: Baráttan verður á milli þeirra Guðmars Freys á Rosa, Thelmu Daggar á Bósa og Kristófers Darra á Ás en ég spái að Guðmar hafi þetta.
Thelma Harðardóttir
Meistaraflokkur: Stöðulistinn er mjög þéttur á toppnum og mikið af gömlum og reyndum pörum svo það er erfitt að rýna í hver væri augljós sigurvegari hér. Ég spái Eyrúnu með Hrannar og Árna með Kötlu sæti á palli og held að baráttan verði á milli þeirra um fyrsta sætið.
Ungmennaflokkur: Hér eru mörg frábær pör með mismunandi reynslu saman svo þetta gæti orðið mjög spennandi flokkur! Ég spái því að Thelma með Bósa, Kristófer með Ás, Hákon með Júlíu og Ylfa verði í úrslitum, hvort það verði með Kolfinn eða Straum. Ég spái Thelmu og Bósa sigri, þau er svo þaulreynd saman og hann afskaplega mjúkur, þetta er par sem heillar mig mikið.
Reynir Atli Jónsson
Meistaraflokkur: Reynsluboltarnir Eyrún og Hrannar eru líkleg til að vinna á heimavelli. það er samt erfitt að spá fyrir um þessa grein. Held að sjaldan eða aldrei hafi svona mörg úber sterk fimmgangspör mætt á Íslandsmót.
Ungmennaflokkur: Ætla veðja á Þingeyingana Thelmu og Bósa. Ekkert flókið , Þingeyingar eru bara svo yfirburða bestir.
Gísli Guðjónsson

Gísli Guðjónsson gæðingadómari LM2016
Meistaraflokkur: Fyrirfram tel ég að Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu II og Eyrún Ýr Pálsdótttir og Hrannar frá Flugumýri séu líklegust til að sigra. Ég ætla að spá því að Árni Björn hafi þetta á Kötlu. Ráslisti í fimmgangi meistara lýtur hrikalega vel út og í þessari grein má ekkert klikka í forkeppni ætli fólk að ná í úrslit, allt getur því gerst. Ég er spenntur fyrir því að sjá Guðmund Björgvinsson á Sólon frá Þúfum og ég tel hann geta blandað sér í baráttuna ásamt fleirum.
Ungmennaflokkur: Ég spái því að Guðmar Freyr og Rosi frá Berglandi sigri í þessari grein en Thelma Dögg og Bósi frá Húsavík og Hákon Dan og Júlía frá Syðri-Reykjum eru þar næst á eftir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH