Íslandsmót – Aðalheiður Anna og Óskar sigurstranlegust í T2

  • 29. júní 2021
  • Fréttir

Aðalheiður Anna og Óskar eru sigurstranglegust í slaktaumatölti meistara

Íslandsmótið í hestaíþróttum hefst á Hólum í Hjaltadal miðvikudaginn 30.júní. Af því tilefni fékk Eiðfaxi þrjá hestamenn auk ritstjóra til þess að spá í spilin með sér um hvaða knapi og hestur færu með sigur af hólmi í hverri grein og hverjir myndu berjast um titlana.

Núna tökum við fyrir keppni í slaktaumatölti og við skulum byrja á því að kynna okkur efstu knapa á stöðulista.

Stöðulisti í T2 – slaktaumatölt 

1 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Óskar frá Breiðstöðum 8.63
2 Gústaf Ásgeir Hinriksson Brynjar frá Bakkakoti 8,33
3 Helga Una Björnsdóttir Hnokki frá Eylandi 8,10
4 Teitur Árnason Njörður frá Feti 8,03
5 Ólöf Helga Hilmarsdóttir Katla frá Mörk 7,90

Stöðulisti T2 ungmennaflokkur 

1 Glódís Rún Sigurðardóttir Glymjandi frá Íbishóli 8,13
2 Arnar Máni Sigurjónsson Geisli frá Miklholti 7,77
3 Egill Már Þórsson Hryggur frá Hryggstekk 7,73
4 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir Prins frá Skúfslæk 7.10
5 Thelma Dögg Tómasdóttir Bósi frá Húsavík 7,07

Eyvindur Hrannar Gunnarsson

 

Meistaraflokkur: Óskar frá Breiðstöðum og knapi hans Aðalheiður Anna hafa sýnt fádæma öruggi í þessari grein síðustu ár og eru lang sigurstranglegust að mínu mati. Á eftir þeim koma þeir Gústaf Ásgeir á Brynjari frá Bakkakoti og Teitur Árnason á Nirði frá Feti.

Ungmennaflokkur Hér hafa þrír knapar og hestar skorið sig úr á stöðulistanum og eru í sérflokki. Það eru þau Glódís Rún á Glymjanda frá Íbishóli, Arnar Máni á Geisla frá Miklholti og Egill Már á Hrygg frá Hryggstekk. Ég þori varla að tippa á það hver tekur gullið, en Glódís hefur smá forskot á drengina þannig ég set peningin á hana.

Thelma Harðardóttir

Meistaraflokkur: Hér held ég að allt geti gerst, enda mjög tæknileg grein og lítið sem má út af bera. Ég er orðin svolítið hrifin af Brynjari frá Bakkakoti, hesturinn hefur margt með sér og fer vel í öllum sýningum. Hann á eftir að veita kempuparinu og reynsluboltunum Aðalheiði og Óskari góða samkeppni en ég spái Aðalheiði og Óskari sigri, þau eru virkilega örugg og glæsileg. 

Ungmennaflokkur: Ég hlakka til að sjá mörg þessara para, og er sérstaklega spennt að sjá hvað Arnar Máni og Geisli gera, þeir hafa nú þekkst para lengst á þessum lista held ég og gaman að sjá þá komna svona hátt á stöðulistann. Ég held persónulega með þeim en held að Glódís eigi eftir að gera mjög sterka atlögu að sigrinum.

Reynir Atli Jónsson

Meistaraflokkur: Aðalheiður og Óskar mæta dýrvitlaus og setja ný viðmið í þessari grein og sigra með yfirburðum.

Ungmennaflokkur: Egill Skriðubóndi og Hryggur Frá Hryggstekk merja þetta í harðri samkeppni við Glódísi og Arnar Mána. 

Gísli Guðjónsson

Meistaraflokkur: Það væri kjánalegt að veðja ekki á Aðalheiði Önnu og Óskar frá Breiðstöðum í þessari grein slíkir eru yfirburðir þeirra í greininni.

Ungmennaflokkur: Glódís Rún Sigurðardóttir og Glymjandi frá Íbishóli eru sigurstranglegust, vissulega má ekki mikið út af bregða í þessari grein þegar komið er að slaka taumnum en ég held samt að enginn eigi séns í þau.

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link