Íslandsmót – Það verður hart barist í tölti!
Allir spá því að Árni Björn nái í sjötta Íslandsmeistaratitil sinn í tölti. Hér situr hann á Stormi frá Herríðarhóli Ljósmynd/Eiðfaxi
Íslandsmótið í hestaíþróttum hefst á Hólum í Hjaltadal miðvikudaginn 30.júní. Af því tilefni fékk Eiðfaxi þrjá hestamenn auk ritstjóra til þess að spá í spilin með sér um hvaða knapi og hestur færu með sigur af hólmi í hverri grein og hverjir myndu berjast um titlana.
Stöðulisti í T1 – tölt
| 1 | Árni Björn Pálsson | Ljúfur frá Torfunesi | 9,20 |
| 2 | Árni Björn Pálsson | Hátíð frá Hemlu II | 8,70 |
| 3-4 | Ævar Örn Guðjónsson | Vökull frá Efri-Brú | 8,57 |
| 3-4 | Viðar Ingólfsson | Maístjarna frá Árbæjarhjáleigu II | 8,57 |
| 5 | Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir | Kveikur frá Stangarlæk 1 * | 8.53 |
| 6 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | Bárður frá Melabergi | 8,50 |
Stöðulisti T1 ungmennaflokkur – tölt
| 1 | Guðmar Freyr Magnússon | Sigursteinn frá Íbishóli | 7,37 |
| 2 | Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir | Skálmöld frá Eystra-Fróðholti | 7,27 |
| 3 | Glódís Rún Sigurðardóttir | Stássa frá Íbishóli | 7,17 |
| 4-5 | Benedikt Ólafsson | Biskup frá Ólafshaga | 7,13 |
| 4-5 | Jóhanna Guðmundsdóttir | Mugga frá Leysingjastöðum | 7,13 |
Eyvindur Hrannar Gunnarsson
Meistaraflokkur: Með fullri virðingu fyrir öðrum knöpum og hestum þá tel ég að það megi byrja að rita nafn knapans á bikarinn. Árni Björn mun þar með bæta sjötta íslandsmeistartitlinum í tölti í safnið sitt en stóra spurningin er hvort það verði á Hátið frá Hemlu eða Ljúf frá Torfunesi. Hann hefur sýnt talsverða yfirburði í þessari grein síðasta ár og ég tel að honum verði ekki skákað í þetta skiptið. Þeir sem munu berjast um 2.sætið hugsa ég að verði Ævar Örn á Vökli frá Efri-Brú, Jóhanna Margrét á Bárði frá Melabergi, Teitur Árnason á Heið frá Eystra-Fróðholti og Viðar Ingólfsson á Maístjörnu frá Árbæjarhjáleigu.
Ungmennaflokkur Þar tel ég að Gyða Sveinbjörg og Skálmöld frá Eystra-Fróðholti klári það í spennandi úrslitum. Fast á hæla hennar kemur Glódís Rún á Stássu frá Íbishóli.
Thelma Harðardóttir
Meistaraflokkur: Ég myndi setja peningana mína á Árna Björn og Ljúf frá Torfunesi, enda eru þeir í þægilegri fjarlægð frá hinum á stöðulistanum. Ljúfur lítur út fyrir að fara svo létt með verkefnið og ef þeir verða eitthvað eins og á Reykjavíkurmeistaramótinu þarf varla að spyrja að leikslokum, að mínu mati!
Ungmennaflokkur: Hér verður ekkert síðri veisla en í fullorðinsflokkinum, þetta er afskaplega sterkur stöðulisti! Ég hef fulla trú á að fólk sem er aðeins neðar á listanum verði í úrslitum og fara mikinn, líkt og Hrund með Rektor og Ylfa með Stórstjörnu. Sigurstranglegastar að mínu mati eru samt þær vinkonurnar Gyða og Skálmöld, þær eru virkilega flott par og vel samstilltar.
Reynir Atli Jónsson
Meistaraflokkur: Árni og Ljúfur eru bara júník dæmi sem andskotinn með alla sína klæki á ekki einu sinni roð í. Þeir vinna og fara nálægt tíunni.
Ungmennaflokkur: Spái þéttri keppni en Gyða Sveinbjörg og Skálmöld taka þetta. Gæðingur.
Gísli Guðjónsson
Meistaraflokkur: Árni Björn er sigurstranglegastur á Ljúfi frá Torfunesi. Þeir sem munu veita honum keppni eru Viðar og Maístjarna, Ævar Örn og Vökull og svo hlakka ég sérstaklega til að sjá Helgu Unu og Flugu frá Hrafnagili, heillaðist mjög af þeirri hryssu í Meistaradeildinni í vetur, léttstíg og fjaðurmögnuð.
Ungmennaflokkur: Þarna verður baráttan á milli Gyðu Sveinbjargar og Skálmaldar og Glódísar og Stássu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH