Íslandsmótið í hestaíþróttum er hafið

  • 30. júní 2021
  • Fréttir

Frá mótssvæðinu á Hólum Ljósmynd/Ásta Björk

Íslandsmótið í hestaíþróttum sem fram fer á Hólum í Hjaltadal er nú hafið en það var Teitur Árnason á Takti frá Vakurstöðum sem reið á vaðið í fjórgangi en nú fer fram forkeppni í þeirri grein bæði í meistara- og ungmennaflokki.

Framundan næstu daga eru sæludagar í Skagafirði og er veðurspáin ljómandi. Það kostar ekkert inn á mótssvæðið en gjald er tekið af tjaldstæði. Fyrir þá sem ætla að mæta á svæðið að þá er hægt að panta pláss á tjaldsvæðið með því að smella hér.

Enginn áhugamaður um hestamennsku þarf að láta mótið framhjá sér fara og um allan heim fylgist fólk með í gegnum streymisveituna Alendis sem sýnir beint frá öllum viðburðum á mótinu. Hægt er að næla sér í áskrift með því að smella hér.

Samkvæmt Skagfirska fréttamiðlinum Feyki verður margt um að vera á svæðinu.

Veitingar og skemmtun í gömlu skólahöllinni á Hólum
-Lemon mun selja samlokur, djúsa og veigar allt mótið
-Frá fimmtudegi verða seldir hamborgarar
-Eduardo, Argentískur listakokkur, mun vera með grillveislu föstudags- og laugardagskvöld
-Sæþór Már mun trúbba fimmtudags-, föstudags,- og laugardagskvöld
-Sýnt verður frá EM á skjávarpa

Hér fyrir neðan má nálgast Ráslista og dagskrá mótsins.

Íslandsmót – Ráslistar liggja fyrir

 

Dagskrá Íslandsmóts

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link