Sigurður og Máttur fimmgangsmeistarar
Sigurður Vignir Matthíasson hampaði fjórða Reykjavíkurmeistaratitil sínum á mótinu þegar hann sigraði stórskemmtilega fimmgangskeppni Meistaraflokks á stóðhesti sínum Mætti frá Leirubakka. Sigurður og Máttur komu fjórðu inn í úrslit en hinn kostagóði gæðingur sýndi mátt sinn og megin ásamt því að Sigurður hlaut tvo plúsa frá dómurum fyrir reiðmennsku.
1 Sigurður Vignir Matthíasson / Máttur frá Leirubakka 7.81
2 Viðar Ingólfsson / Már frá Feti 7.48
3-4 John Sigurjónsson / Konsert frá Korpu 7.45
3-4 Jakob Svavar Sigurðsson / Alur frá Lundum II 7.45
5 Haukur Baldvinsson / Falur frá Þingeyrum 7.14
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH