„Varð gæðingur strax og er gæðingur enn“

  • 11. júlí 2021
  • Uncategorized @is

Adrían frá Garðshorni á Þelamörk er sigurvegari í B-flokki gæðinga á Fjórðungsmóti en knapi hans var Daníel Jónsson. Sætaröðun dómara þurfti til að skera úr um sigur á milli hans og Tuma frá Jarðbrú sem Þórarinn Eymundsson sýndi.

Eiðfaxi tók Daníel spjalli að úrslitum loknum þar sem hann hafði frá ýmsu skemmtilegu að segja. Viðtalið má skoða í spilaranum hér að ofan.

 

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1-2 Adrían frá Garðshorni á Þelamörk / Daníel Jónsson 8,99
1-2 Tumi frá Jarðbrú / Þórarinn Eymundsson 8,99
3 List frá Þúfum / Mette Mannseth 8,83
4 Þorsti frá Ytri-Bægisá I / Sigurður Sigurðarson 8,75
5 Steggur frá Hrísdal / Siguroddur Pétursson 8,69
6 Melódía frá Hjarðarholti / Elín Magnea Björnsdóttir 8,64
7 Blundur frá Þúfum / Gísli Gíslason * 8,28
8 Eyja frá Hrísdal / Guðný Margrét Siguroddsdóttir * 8,17

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link