Mette Mannseth hlaut reiðmennskuverðlaun FT

  • 12. júlí 2021
  • Uncategorized @is

Mette Mannseth hlaut reiðmennskuverðlaun FT á Fjórðungsmótinu í Borgarnesi. Metta átti góðu gengi að fagna á mótinu. Hún stóð efst í A-flokki á hesti sínum Kalsa frá Þúfum og var með tvö hross í A-úrslitum í B-flokki þau List frá Þúfum og Blund frá Þúfum. Þá varð hún í þriðja sæti í 100 metra skeiði á Vívaldi frá Torfunesi.

í texta frá FT sagði

Reiðmennskuverðlaun FT er viðurkenning þar sem saman fer framúrskarandi reiðmennska, áverkalausir hestar og prúð framkoma á mótinu í heild sinni. Mette Mannseth hefur sýnt það með fjölda hrossa á mótinu, flest úr eigin ræktun. Uppúr stendur vel þjálfuð hross, einstaklega falleg framkoma, ósýnilegar ábendingar, mikil orka og útgeislun. Knapi og hross verða svo sannarlega eitt.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link