Töfri frá Þúfum til notkunar á Óslandi
Töfri frá Þúfum er hæstur fyrir hæfileika í flokki 5v stóðhesta ásamt Salómon frá Efra-Núpi.
Töfri frá Þúfum fer í hólf á Óslandi í Skagafirði föstudaginn 16.7.
Töfri er með fyrir hæfileika 8,55 þar af 9 fyrir tölt, samstarfsvilja og fegurð í reið bara 5 vetra gamall. Hann kom fram á landssýningunni og var þar annar í 5v flokki stóðhesta. Töfri kom einnig til dóms 4v með 8.18 í aðaleinkun.
Töfri er sérlega auðveldur og hreingengur hestur með vel aðskildar gangtegundir og góðar beisliseigileika, léttur í lund og skrefi.
Töfri er léttbyggður með langan, grannan háls sem nýtist vel í reið.
Verð 100 000kr með öllu fyrir fengna hryssu.
Töfri frá Þúfum 5v
Conformation: 8,5 – 8,5 – 9,0 – 8,5 – 7,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 = 8,41
Rideability: 9,0 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 9,0 – 9,0 – 6,5 = 8,55
Slow tölt: 8,5
Total: 8,50
F.: Trymbill frá Stóra-Ási
M: Völva frá Breiðsstöðum
Mf: Seiður frá Flugumýri II
Mm: Fantasía frá Breiðstöðum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH