Flottur fyrsti dagur á Íslandsmóti barna og unglinga

Embla Moey og Skandall eru ennþá í gír frá því á Fjórðungsmótinu og leiða nú fjórgang barna á Íslandsmótinu
Fyrsta keppnisdegi á Íslandsmóti barna og unglinga er nú lokið. Mótið fer fram á Sörlastöðum í Hafnarfirði þar sem allt er til fyrirmyndar nú sem áður. Keppnisgreinar dagsins voru þrjár en þær voru fimmgangur unglinga, fjórgangur barna og fjórgangur unglinga.
Í fimmgangi unglinga er það Védís Huld Sigurðardóttir á Eysteini frá Íbishóli sem leiðir keppnina með ágætis forskoti á næstu keppendur en einkunn þeirra er 6,60. Í öðru sæti er Hulda María Sveinbjörnsdóttir og Björk frá Barkarstöðum og í því þriðja Sara Dís Snorradóttir á Gimsteini frá Víðinesi með 6,37.
Embla Moey Guðmarsdóttir virðist vera í gírnum eftir Fjórðungsmót þar sem hún sigraði barnaflokk því hún og Skandall frá Varmalæk 1 eru efst eftir forkeppni í fjórgangi barna með 6,50 í einkunn. Ragnar Snær Viðarsson er í öðru sæti á Rauðku frá Ketilsstöðum með 6,37 í einkunn og í þriðja sætinu er Hjördís Halla Þórarinsdóttir á Flipa frá Bergsstöðum Vatnsesi með 6,30 í einkunn.
Kolbrún Katla Halldórsdóttir er efst í fjórgangi unglinga á Sigurrós frá Söðulsholti með 7,07 í einkunn. Védís Huld Sigurðardóttir og Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum eru í öðru sæti með 7,03 og í því þriðja er Signý Sól Snorradóttir á Kolbeini frá Horni með 6,93 í einkunn.
Dagskrá morgundagsins hefst á tölti t4 unglinga og svo rekur hver forkeppnin aðra og annað kvöld verða Íslandsmeistarar krýndir í Fimi unglinga og barna.
- Föstudagur 16 júlí
- Kl. 09:40 Upphitunarhestur
- Kl. 10:00 – 11:00 Tölt T4 Unglingaflokkur
- Kl. 11:00 – 11:30 Tölt T4 Barnaflokkur
- Kl. 11:30 – 13:30 Tölt T1 Unglingaflokkur knapi 1-25
- Kl. 13:30 – 14:30 MATARHLÉ
- Kl. 14:30 – 16:30 Tölt T1 Unglingaflokkur knapi 26-53
- Kl. 16:30 – 17:20 Tölt T3 Barnaflokkur
- Kl. 17:20 – 17:40 KAFFIHLÉ
- Kl. 17:40 – 19:00 Fimi A Unglingaflokkur
- Kl. 19:00 – 20:00 Fimi A Barnaflokkur
- Kl. 20:00 – 20:15 Verðlaunaafhending Fimi A
Fjórgangur unglinga
Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
1 | Kolbrún Katla Halldórsdóttir / Sigurrós frá Söðulsholti | 7,07 |
2 | Védís Huld Sigurðardóttir / Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum | 7,03 |
3 | Signý Sól Snorradóttir / Kolbeinn frá Horni I | 6,93 |
4 | Þórgunnur Þórarinsdóttir / Hnjúkur frá Saurbæ | 6,90 |
5 | Sigurbjörg Helgadóttir / Elva frá Auðsholtshjáleigu | 6,87 |
6-8 | Matthías Sigurðsson / Æsa frá Norður-Reykjum I | 6,80 |
6-8 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir / Garpur frá Skúfslæk | 6,80 |
6-8 | Sara Dís Snorradóttir / Bálkur frá Dýrfinnustöðum | 6,80 |
9 | Glódís Líf Gunnarsdóttir / Fífill frá Feti | 6,77 |
10 | Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal / Freyðir frá Leysingjastöðum II | 6,73 |
11-13 | Védís Huld Sigurðardóttir / Tenór frá Litlu-Sandvík | 6,70 |
11-13 | Kristján Árni Birgisson / Viðar frá Eikarbrekku | 6,70 |
11-13 | Svandís Aitken Sævarsdóttir / Fjöður frá Hrísakoti | 6,70 |
14-15 | Herdís Björg Jóhannsdóttir / Snillingur frá Sólheimum | 6,67 |
14-15 | Jón Ársæll Bergmann / Toppur frá Litlu-Reykjum | 6,67 |
16-18 | Helena Rán Gunnarsdóttir / Goði frá Ketilsstöðum | 6,60 |
16-18 | Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir / Þytur frá Stykkishólmi | 6,60 |
16-18 | Eygló Hildur Ásgeirsdóttir / Saga frá Dalsholti | 6,60 |
19-20 | Anna María Bjarnadóttir / Tónn frá Hjarðartúni | 6,57 |
19-20 | Katrín Ösp Bergsdóttir / Ölver frá Narfastöðum | 6,57 |
21 | Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal / Kormákur frá Kvistum | 6,53 |
22-25 | Sigurður Baldur Ríkharðsson / Ás frá Traðarlandi | 6,50 |
22-25 | Kristján Árni Birgisson / Þróttur frá Þjóðólfshaga 1 | 6,50 |
22-25 | Hekla Rán Hannesdóttir / Þoka frá Hamarsey | 6,50 |
22-25 | Glódís Líf Gunnarsdóttir / Magni frá Spágilsstöðum | 6,50 |
26 | Glódís Líf Gunnarsdóttir / Glaðnir frá Dallandi | 6,43 |
27-29 | Fanndís Helgadóttir / Ötull frá Narfastöðum | 6,37 |
27-29 | Lilja Dögg Ágústsdóttir / Hviða frá Eldborg | 6,37 |
27-29 | Matthías Sigurðsson / Dýri frá Hrafnkelsstöðum 1 | 6,37 |
30 | Kolbrún Katla Halldórsdóttir / Selja frá Gljúfurárholti | 6,33 |
31 | Sara Dís Snorradóttir / Palesander frá Heiði | 6,30 |
32 | Selma Leifsdóttir / Sæla frá Eyri | 6,27 |
33 | Júlía Björg Gabaj Knudsen / Svala frá Oddsstöðum I | 6,23 |
34 | Auður Karen Auðbjörnsdóttir / Blíða frá Aðalbóli 1 | 6,17 |
35-36 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir / Fluga frá Prestsbakka | 6,13 |
35-36 | Hekla Rán Hannesdóttir / Krafla frá Hamarsey | 6,13 |
37-38 | Eva Kærnested / Logi frá Lerkiholti | 6,10 |
37-38 | Friðrik Snær Friðriksson / Tromma frá Bjarnanesi | 6,10 |
39-40 | Sigurður Steingrímsson / Ástríkur frá Hvammi | 6,00 |
39-40 | Þorbjörg H. Sveinbjörnsdóttir / Ísó frá Grafarkoti | 6,00 |
41 | Kolbrún Sif Sindradóttir / Orka frá Stóru-Hildisey | 5,93 |
42 | Ágúst Einar Ragnarsson / Blæja frá Hafnarfirði | 5,90 |
43-44 | Svandís Aitken Sævarsdóttir / Huld frá Arabæ | 5,87 |
43-44 | Aldís Arna Óttarsdóttir / Þrándur frá Sauðárkróki | 5,87 |
45-46 | Ágúst Einar Ragnarsson / Þór frá Hafnarfirði | 5,80 |
45-46 | Aðalbjörg Emma Maack / Daníel frá Vatnsleysu | 5,80 |
47 | Birna Diljá Björnsdóttir / Hófý frá Hjallanesi 1 | 5,77 |
48 | Þórey Þula Helgadóttir / Hlökk frá Hvammi I | 5,70 |
49 | Eva Kærnested / Bragur frá Steinnesi | 5,63 |
50 | Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson / Polka frá Tvennu | 5,60 |
51 | Jessica Ósk Lavender / Gjöf frá Brenniborg | 5,47 |
52 | Oddur Carl Arason / Drift frá Hraunholti | 5,30 |
53 | Aldís Arna Óttarsdóttir / Töfri frá Akureyri | 5,07 |
54 | Anna María Bjarnadóttir / Björk frá Vestra-Fíflholti | 4,30 |
55 | Steinunn Lilja Guðnadóttir / Assa frá Þúfu í Landeyjum | 3,47 |
56-58 | Eygló Hildur Ásgeirsdóttir / Glanni frá Hofi | 0,00 |
56-58 | Kristín Karlsdóttir / Smyrill frá Vorsabæ II | 0,00 |
56-58 | Rakel Gígja Ragnarsdóttir / Griffla frá Grafarkoti | 0,00 |
Fjórgangur Barnaflokkur
Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
1 | Embla Moey Guðmarsdóttir / Skandall frá Varmalæk 1 | 6,50 |
2 | Ragnar Snær Viðarsson / Rauðka frá Ketilsstöðum | 6,37 |
3 | Hjördís Halla Þórarinsdóttir / Flipi frá Bergsstöðum Vatnsnesi | 6,30 |
4 | Lilja Rún Sigurjónsdóttir / Þráður frá Egilsá | 6,27 |
5 | Elva Rún Jónsdóttir / Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ | 6,17 |
6 | Þórhildur Lotta Kjartansdóttir / Sikill frá Árbæjarhjáleigu II | 6,13 |
7-8 | Ragnar Snær Viðarsson / Svalur frá Rauðalæk | 6,07 |
7-8 | Elísabet Vaka Guðmundsdóttir / Heiðrún frá Bakkakoti | 6,07 |
9-10 | Kristín Eir Hauksdóttir Holake / Ísar frá Skáney | 6,00 |
9-10 | Þórhildur Helgadóttir / Kóngur frá Korpu | 6,00 |
11 | Kristín Eir Hauksdóttir Holake / Sóló frá Skáney | 5,97 |
12-13 | Sigrún Helga Halldórsdóttir / Gefjun frá Bjargshóli | 5,93 |
12-13 | Dagur Sigurðarson / Gróa frá Þjóðólfshaga 1 | 5,93 |
14-16 | Elísabet Líf Sigvaldadóttir / Elsa frá Skógskoti | 5,90 |
14-16 | Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir / Komma frá Traðarlandi | 5,90 |
14-16 | Bjarndís Rut Ragnarsdóttir / Tenór frá Hemlu II | 5,90 |
17 | Sigrún Helga Halldórsdóttir / Hugur frá Kálfholti | 5,87 |
18 | Eyvör Vaka Guðmundsdóttir / Bragabót frá Bakkakoti | 5,77 |
19 | Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir / Ernir Tröð | 5,73 |
20 | Apríl Björk Þórisdóttir / Bruni frá Varmá | 5,70 |
21 | Sigríður Fjóla Aradóttir / Hlynur frá Húsafelli | 5,67 |
22 | Hákon Þór Kristinsson / Andvari frá Kvistum | 5,50 |
23 | Hrafnhildur Rán Elvarsdóttir / Stefnir frá Hofsstaðaseli | 5,33 |
24 | Þórhildur Lotta Kjartansdóttir / Göldrun frá Hákoti | 5,23 |
25 | Kristín María Kristjánsdóttir / Leiftur frá Einiholti 2 | 5,10 |
26 | Ögn H. Kristín Guðmundsdóttir / Tannálfur frá Traðarlandi | 4,87 |
27 | Ögn H. Kristín Guðmundsdóttir / Spekingur frá Litlu-Hlíð | 4,83 |
28 | Ísabella Helga Játvarðsdóttir / Trausti frá Glæsibæ | 0,00 |
Fimmgangur unglinga
Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
1 | Védís Huld Sigurðardóttir / Eysteinn frá Íbishóli | 6,60 |
2 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir / Björk frá Barkarstöðum | 6,43 |
3 | Sara Dís Snorradóttir / Gimsteinn frá Víðinesi 1 | 6,37 |
4-5 | Þórgunnur Þórarinsdóttir / Taktur frá Varmalæk | 6,33 |
4-5 | Þórgunnur Þórarinsdóttir / Djarfur frá Flatatungu | 6,33 |
6 | Jón Ársæll Bergmann / Sóldögg frá Brúnum | 6,27 |
7 | Matthías Sigurðsson / Frami frá Efri-Þverá | 6,20 |
8-9 | Kolbrún Sif Sindradóttir / Styrkur frá Skagaströnd | 6,17 |
8-9 | Matthías Sigurðsson / Díva frá Árbæ | 6,17 |
10 | Signý Sól Snorradóttir / Magni frá Þingholti | 6,10 |
11 | Ragnar Snær Viðarsson / Laxnes frá Ekru | 6,07 |
12-13 | Þórey Þula Helgadóttir / Sólon frá Völlum | 6,00 |
12-13 | Kristján Árni Birgisson / Rut frá Vöðlum | 6,00 |
14 | Sara Dís Snorradóttir / Djarfur frá Litla-Hofi | 5,97 |
15 | Herdís Björg Jóhannsdóttir / Snædís frá Forsæti II | 5,93 |
16-17 | Glódís Líf Gunnarsdóttir / Nótt frá Reykjavík | 5,90 |
16-17 | Matthías Sigurðsson / Slyngur frá Fossi | 5,90 |
18 | Selma Leifsdóttir / Þula frá Stað | 5,80 |
19-20 | Hekla Rán Hannesdóttir / Halla frá Kverná | 5,73 |
19-20 | Helena Rán Gunnarsdóttir / Gyðja frá Læk | 5,73 |
21 | Júlía Björg Gabaj Knudsen / Nagli frá Grindavík | 5,70 |
22 | Aðalbjörg Emma Maack / Návist frá Lækjamóti | 5,53 |
23 | Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson / Heimur frá Hvítárholti | 5,40 |
24 | Jón Ársæll Bergmann / Valka frá Íbishóli | 5,30 |
25 | Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal / Ljúfur frá Lækjamóti II | 5,20 |
26-27 | Anna María Bjarnadóttir / Höfði frá Bakkakoti | 5,17 |
26-27 | Lilja Dögg Ágústsdóttir / Tindur frá Þjórsárbakka | 5,17 |
28 | Sigurður Baldur Ríkharðsson / Myrkvi frá Traðarlandi | 5,00 |
29 | Oddur Carl Arason / Teigur frá Ásatúni | 4,97 |
30 | Embla Lind Ragnarsdóttir / Mánadís frá Litla-Dal | 4,93 |
31 | Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal / Gustur frá Efri-Þverá | 4,77 |
32 | Eva Kærnested / Tign frá Stokkalæk | 4,57 |
33 | Kolbrún Katla Halldórsdóttir / Herská frá Snartartungu | 4,43 |
34 | Salóme Kristín Haraldsdóttir / Esjutindur frá Litlu-Brekku | 4,40 |
35 | Auður Karen Auðbjörnsdóttir / Ullur frá Torfunesi | 0,00 |